Einbýlishúsið Helgafell við Tjarnarstíg 2 á Seltjarnarnesi hefur verið sett á sölu. Um er að ræða reisulegt steinsteypt hús frá árinu 1935 sem stendur á gróinni hornlóð við Tjarnarstíg og Lambastaðabraut.
Ásett verð fyrir eignina er 199,5 milljónir króna.
Húsið var reist eftir teikningum Þorleifs Eyjólfssonar og hefur að sögn fasteignasala haldið sínum sérstæða karakter í gegnum tíðina. Eignin er á tveimur hæðum og henni fylgir sérstæður bílskúr.
Samkvæmt nýrri skráningartöflu, sem er til yfirferðar hjá viðeigandi yfirvöldum, er heildarstærð eignarinnar 332,7 fermetrar. Efri hæð hússins er 142,3 fermetrar og neðri hæðin 154,6 fermetrar. Bílskúrinn er 35,8 fermetrar.
Helgafell stendur í rólegu og grónu íbúðahverfi á Seltjarnarnesi. Húsið er rúmgott og býður samkvæmt sölulýsingu upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars fyrir stóra fjölskyldu.
Eignin vekur ekki síst athygli fyrir aldur sinn og byggingarstíl en tæp 92 ár eru liðin frá því að húsið var reist. Með fermetraverði miðað við uppgefna heildarstærð er óskað eftir um 600 þúsund krónum fyrir hvern fermetra.
Kaupandi þarf því að reiða fram tæplega 200 milljónir króna vilji hann eignast Helgafell og þar með hús sem hefur staðið á Seltjarnarnesi frá því á fjórða áratug síðustu aldar en athygli vekur að ekki eru birtar ljósmyndir innan úr húsinu.

