
Bakstur er vinsælt áhugamál sem hentar jafnt byrjendum sem reyndum bakara. Afraksturinn getur verið ljúffengur en bakstur getur einnig haft ýmis jákvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan. Þótt heimabakstur sé ekki sjálfkrafa hollari en það sem fæst úti í búð getur hann meðal annars veitt fólki meiri stjórn á hráefnum, ýtt undir sköpunargáfu og jafnvel dregið úr streitu.
Hér eru sjö leiðir sem bakstur getur haft jákvæð áhrif á heilsu og líðan.
1. Meiri stjórn á hráefnunum
Einn kostur heimabaksturs er að bakarinn ræður sjálfur hvaða hráefni fara í kökuna, brauðið eða annað bakkelsi. Þannig er hægt að takmarka mettaða fitu, viðbættan sykur og salt. Það getur til dæmis falist í því að velja uppskriftir þar sem minna er notað af smjöri, kókosolíu og sykri.
2. Getur stuðlað að betra mataræði
Bakstur og önnur matargerð heima fyrir getur haft áhrif á matarval fólks. Heimabakaðar vörur geta verið minna unnar en ýmsar tilbúnar vörur úr verslunum. Mikil neysla svokallaðra ofurunninna matvæla hefur í rannsóknum verið tengd ýmsum heilsufarsvandamálum, meðal annars offitu, háum blóðþrýstingi, sykursýki og ójafnvægi í blóðfitum.
3. Getur dregið úr streitu
Bakstur getur einnig haft áhrif á andlega líðan. Þótt frekari rannsókna sé þörf benda reynslusögur til þess að bakstur geti hjálpað sumum að draga úr streitu og kvíða. Á meðan á bakstri stendur beinist athyglin að ákveðnu verkefni og niðurstaðan er áþreifanleg. Baksturinn getur auk þess veitt kærkomið hlé frá símanum, samfélagsmiðlum og stöðugu upplýsingaflæði.
4. Eflir sköpunargáfuna
Byrjendur þurfa gjarnan að fylgja uppskriftum nákvæmlega en með aukinni reynslu skapast meira svigrúm til tilrauna. Þá er hægt að prófa ný bragðefni, breyta uppskriftum og þróa eigin hugmyndir. Ekki heppnast allar tilraunir en mistök geta líka orðið hluti af lærdómsferlinu.
5. Þjálfar hagnýta færni
Bakstur krefst ýmiss konar færni. Þar reynir meðal annars á skipulagningu, tímastjórnun, útsjónarsemi, nákvæmni og lausn vandamála. Þetta eru hæfileikar sem geta nýst á fjölmörgum öðrum sviðum daglegs lífs.
6. Getur styrkt félagsleg tengsl
Bakstur getur verið félagsleg athöfn. Fjölskyldur, vinir og pör geta bakað saman og notið samverunnar. Einnig getur það að gefa öðrum heimabakað bakkelsi verið leið til að rækta tengsl og skapa tilefni til samskipta.
7. Getur sparað peninga
Að lokum getur heimabakstur í sumum tilvikum verið ódýrari en að kaupa sambærilegar vörur tilbúnar. Það fer þó eftir verði hráefna og hvers konar bakkelsi er um að ræða.
Bakstur getur því verið meira en einföld leið til að útbúa eitthvað gott. Hann getur sameinað sköpun, félagsleg samskipti og hagnýta færni og um leið stuðlað að betri líðan.
