
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og komu meðal annars upp nokkur alvarleg ofbeldismál. Þrír voru vistaðir í fangaklefa vegna rannsóknar á ráni og meiriháttar líkamsárás og tveir til viðbótar vegna rannsókna á líkamsárásum.
Lögregla hafði einnig afskipti af unglingapartýi sem fór úr böndunum og voru tveir kærðir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og fyrir vopnaburð. Í öðru máli hrækti einstaklingur í andlit sjúkraflutningsmanns.
Nokkur útköll tengdust skemmtanalífinu. Einn var vistaður um stund vegna frávika í hegðun gagnvart starfsfólki skemmtistaðar og annar færður á lögreglustöð vegna sambærilegrar hegðunar. Skömmu síðar kom lögregla í aftur á sama stað vegna slagsmála.
Þá var kona færð á lögreglustöð eftir að hafa sparkað í lögreglubifreið. Hún var látin laus að lokinni skýrslutöku.
Lögregla hafði afskipti af nokkrum ökumönnum. Einn þeirra var án ökuréttinda og annar er grunaður um fjölmörg brot. Sá síðarnefndi var án réttinda, er sagður hafa valdið umferðaróhappi og eignaspjöllum og ekið undir áhrifum fíkniefna auk annarra umferðarlagabrota. Þá var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tvö umferðarslys komu jafnframt til kasta lögreglu.
Einn var vistaður vegna vörslu fíkniefna og ólöglegrar dvalar í landinu og lögregla hafði afskipti af öðrum vegna vörslu fíkniefna.
Eitt heimilisofbeldismál er til rannsóknar hjá lögreglu.
