1
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

2
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

3
Heimur

Dularfullt ákall á netinu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

4
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

5
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

6
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

7
Innlent

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

8
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

9
Innlent

Eigendur Nettó dæmdir eftir áralanga deilu við aha.is

10
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Til baka

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum

Halldór Laxness 2
Halldór Laxness
Mynd: Gjúlfrasteinn

Íslenska nóbelsskáldið Halldór Laxness fær lofsamlega umfjöllun í breska dagblaðinu The Guardian þar sem lesandi blaðsins segir frá reynslu sinni af því að lesa skáldsöguna Sjálfstætt fólk.

Umfjöllunin birtist í grein þar sem rithöfundar og lesendur Guardian segja frá þeim bókum sem þeir lásu í október. Þar eru meðal annars rithöfundarnir Ian Rankin og Louise Kennedy, en íslenska bókmenntaverkið vekur sérstaka athygli hjá lesanda að nafni Mark.

Mark segist hafa sett sér það markmið á árinu að lesa eingöngu bækur eftir höfunda utan hins enskumælandi heims og að velja höfund frá nýju landi í hvert sinn. Sú áskorun hafi leitt hann að Sjálfstæðu fólki, rúmlega 500 blaðsíðna skáldsögu um íslenska bændafjölskyldu.

Í bókinni fylgist lesandinn með lífi Bjarts í Sumarhúsum og fjölskyldu hans yfir um tveggja áratuga skeið á fyrri hluta 20. aldar. Mark segir söguna fjalla um þrengingar þrjósks bónda sem leggur allt undir til að standa á eigin fótum og varðveita sjálfstæði sitt og jarðar sinnar.

Hann viðurkennir að hafa búist við afar þungri og drungalegri lesningu. Bókin sé vissulega þannig á köflum, ekki síst þegar dauðinn ber að garði, en húmorinn hafi komið honum á óvart. Sérstaklega nefnir hann kaldhæðni persónanna og samskipti þeirra.

Mark hrósar einnig lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum og segir þær skapa sterkt andrúmsloft í verkinu. Náttúran og áhrif hennar á lífið á bænum verði nær áþreifanleg í frásögninni.

Þá fær enska þýðing bókarinnar, eftir JA Thompson í samstarfi við Laxness sjálfan, mikið lof. Mark segir lestur þýddra bókmennta á árinu hafa kennt sér að meta góðar þýðingar og lýsir ensku útgáfu Sjálfstæðs fólks einfaldlega sem stórkostlegri.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Helgi Ólafsson er fallinn frá
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi
Heimur

Dómaradeilan sýður upp úr í Póllandi

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco
Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vélhunda um San Francisco

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið
Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við
Innlent

Hrekkjavakan tekur yfir göturnar og lögreglan varar ökumenn við

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag
Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu
Myndband
Menning

Luthersson frumsýnir blóðuga ástarsögu í eyðimörk Kaliforníu

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið
Menning

Sendu símann í svefnpoka og fáðu smá frið

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar
Menning

Ást, missir og barnþrá í uppseldri skáldsögu Margrétar

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Loka auglýsingu