
Leigusali sem krafði fyrrverandi leigjanda sinn um 124 þúsund krónur í skaðabætur vegna ástands íbúðar við lok leigutíma fékk kröfu sinni hafnað hjá kærunefnd húsamála. Úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp 15. október en birtist á vef Stjórnarráðsins 27. október.
Málið snerist um íbúð sem leigjandinn hafði haft á leigu til 31. mars síðastliðins. Samkvæmt málatilbúnaði leigusalans sendi leigjandinn honum mynd af lykli á eldhúsborði 19. mars og tilkynnti að hann væri fluttur út.
Leigusalinn taldi viðskilnaðinn óviðunandi. Hann sagði blaut handklæði hafa legið á gólfi, frysti hafa verið skilinn eftir afþíddan og rusl óflokkað. Þá hafi íbúðin almennt verið óhrein og ekki verið gerð fullnægjandi tilraun til að þrífa hana.
Krafðist hann 124 þúsund króna í skaðabætur vegna þrifa á íbúð og frysti auk flokkunar og förgunar á rusli. Krafan miðaðist við 15,5 klukkustunda vinnu og átta þúsund króna tímagjald.
Leigjandinn hafnaði því hins vegar að ástand íbúðarinnar hefði verið með þeim hætti að skaðabótakrafa væri réttlætanleg. Hann lagði fram fjölda mynda sem hann sagði sýna að eignin hefði verið í góðu ástandi þegar hann flutti út. Hann viðurkenndi þó að hafa skilið eftir kaffibolla og gleymt að ganga frá rusli.
Kærunefnd húsamála benti á að aðilar hefðu hvorki gert sameiginlega úttekt á íbúðinni við upphaf né lok leigutímans, eins og gert er ráð fyrir í húsaleigulögum.
Taldi nefndin að leigusalinn yrði að bera hallann af því.
Nefndin féllst á að myndir leigusalans staðfestu að einhverju leyti óþrif í íbúðinni. Á móti lægju hins vegar fyrir myndir frá leigjandanum sem sýndu eignina í viðunandi ástandi við lok leigutímans.
Vegna andmæla leigjandans og skorts á úttektarskýrslum taldi nefndin því ekki sannað að ástand íbúðarinnar hefði verið svo slæmt að það réttlætti skaðabótakröfu upp á 124 þúsund krónur.
Kröfu leigusalans var því hafnað í heild sinni.
