1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Brynjar Birgisson

Brynjar Birgisson 02

Strætó hefur aldrei verið verri

Strætó
Mynd: Víkingur

Hóflega metið ætla ég að 95% allra ferða minna í og úr vinnu eða skóla undanfarin 22 ár hafi ég farið fótgangandi eða með strætó. Ég segi þetta til að undirstrika að ég er reynslubolti þegar kemur að strætósamgöngum á höfuðborgarsvæðinu og tel ég mig fullfæran um að setja eftirfarandi fullyrðingu fram:

Það hefur aldrei verið verra að notast við strætó sem þinn helsta fararmáta á undanförnum 22 árum en í dag.

Þar með er þó ekki sagt að engar framfarir hafi verið teknar. Í mörg ár eftir bankahrunið var ekki hægt að taka strætó fyrir hádegi á sunnudögum en það er hægt í dag. Klapp-appið er ekki alveg jafn lélegt og það var þegar það var tekið í notkun árið 2021 og í sumum strætóskýlum er stafræn tafla sem upplýsir þig í rauntíma hversu langt er í næsta vagn.

Þá er þeirri upptalningu lokið.

Ég er ekki einu sinni að segja þetta í einhverju ýkjugríni, þó er vissulega hægt að deila um leiðarkerfið og tíðni ferða en slíkt er sífellt að breytast og fer eftir búsetu. Í október var tilkynnt að þjónusta strætó yrði skert eftir að tíðni ferða hafði verið aukin í fyrrahaust en það gæti mögulega verið blessun í dulargervi.

Það er kannski erfitt að trúa því en eiginlega það versta sem hefur gerst fyrir strætósamgöngur á þessum 22 árum er þessi þjónustuaukning sem gerð var í fyrra.

Hér er listi yfir hluti sem breyttust þá:

  • Strætóbílstjórar að hleypa fólki út eða inn á rauðum ljósum til að þurfa ekki að fara í innskot fyrir strætó eða stoppa við næsta strætóskýli til að spara tíma - Þetta upplifi ég nánast daglega.
  • Strætóbílstjórar aka yfir á rauðu ljósi til að spara tíma - Þetta upplifi ég um það bil tvisvar í viku.
  • Strætóbílstjórar aka fram hjá fólki sem er greinilega að bíða eftir strætó af því að fólkið veifar ekki höndum eins og það sé fremst á rapptónleikum til að ná athygli bílstjórans - Ég verð vitni að þessu um það bil tvisvar í viku.
  • Strætóbílstjórinn leyfir öllum að fá frítt vegna þess að það tekur svo langan tíma að skanna QR-kóðann í Klapp og vagninn er á eftir áætlun - Þetta upplifi ég nánast daglega.

Hafið í huga að þetta á ekki við um eina ákveðna strætóleið sem ég tek alltaf. Ég er svo heppinn að ég get tekið þrjá mismunandi strætisvagna í og úr vinnu og þetta gerist á öllum leiðunum. Svo tek ég líka aðra vagna í öðrum erindagjörðum.

Sumir strætóbílstjórar eru stanslaust að tala í símann, aðrir tala hvorki íslensku né ensku nógu vel til að geta hjálpað fólki. Strætóbílstjórarnir eru líka heilt yfir verri í dag en fyrir 5, 10, 15 og 20 árum.

Fyrir utan hin augljósu lögbrot að fara reglulega yfir á rauðu ljósi þurfti ég nýlega að fara úr strætó talsvert áður en ég kom heim af því að ég varð bílveikur vegna aksturslags bílstjórans. Það hefur aldrei gerst áður.

Meira að segja strætisvagnarnir sjálfir eru verri en þeir voru fyrir nokkrum árum. Fyrir ekki svo löngu byrjaði Strætó að nota hina kínversku Higer-vagna. Þeir vagnar virðast vera hannaðir af fólki sem vill að almenningssamgöngur deyi.

Það er í raun ótrúlegt að Strætó hafi keypt þessa vagna. Sætin eru harðari, minni og mun minna fótapláss er í sætunum. Ef þú ert yfir 185 sentimetra á hæð þá áttu ekki séns nema í örfáum sætum sem af einhverri ástæðu eru með aðeins meira fótapláss. Til allrar hamingju er ekki allur flotinn Higer en satt best að segja óttast ég að það sé framtíðin.

Að mörgu leyti hefur þjónustan tekið svo furðulegum afturförum að manni fallast eiginlega hendur. Það að ég hafi getað keypt eins mánaðar kort, þriggja mánaða kort, níu mánaða kort og árið 2006 en geti aðeins keypt eins mánaðar og árskort árið 2026 er einfaldlega óskiljanlegt.

Sérstaklega í ljósi þess að flestir myndu kaupa níu mánaða kort í byrjun september þar sem fólk, oft og tíðum framhaldsskóla- og háskólanemendur, tekur talsvert minna strætó í júní, júlí og ágúst.

Svo er auðvitað vandamálið varðandi áreiðanleika strætó til að mæta á réttum tíma. Eflaust býr Strætó yfir einhvers konar gögnum um að strætisvagnar mæti oftar á réttum tíma nú en fyrir 22 árum en ég get ekki sagt að ég finni fyrir því, þótt ég hafi ekki gert sérstakar mælingar á því. Ég tók þá ákvörðun síðasta vetur að hætta að skoða komu- og brottfarartíma í þeim vögnum sem ég nota því það þjónar engum tilgangi. Ég fer bara í strætóskýlið um það bil 45 mínútum áður en ég þarf að komast eitthvert og vona það besta. Stundum kemur vagn strax en svo næsta dag á sama tíma kemur enginn vagn næstu 30 mín. Stundum koma tveir á sama tíma.

Í dag er ég svo heppinn að vera með vinnuveitanda sem kippir sér ekkert upp við það þótt ég mæti of seint vegna þess að strætisvagn var of seinn þar sem ég get einfaldlega unnið það upp. Það á hins vegar ekki við um allar vinnur. Þetta mun væntanlega breytast gífurlega með komu Borgarlínu, ef Guð leyfir.

En hvað er til ráða? Hvernig er hægt að bæta strætókerfið á höfuðborgarsvæðinu?

Það er pæling að hætta að skipa borgar- og bæjarfulltrúa sveitarfélaganna sem eiga Strætó í stjórn félagsins. Í gegnum tíðina hefur þar verið fólk að finna sem notar ekki strætó og hefur opinberlega gefið það út að það hafi ekki áhuga á bættum almenningssamgöngum. Í stjórn Strætó þarf að vera fólk sem bæði hefur áhuga og þekkingu á almenningssamgöngum.

Það væri ágætis byrjun.

Svo augljóslega Borgarlína.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri
Skoðun

Brynjar Birgisson

Strætó hefur aldrei verið verri

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Vírusinn
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?
Skoðun

Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Loka auglýsingu