Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

„Gætu mögulega ýtt væntanlegum kaupendum frá sér með því að bjóða upp á þessar myndir“

Mynd úr alvöru fasteignaauglýsingu
Mynd úr alvöru fast­eigna­aug­lýs­ingu

Greinileg aukning hefur orðið á notkun falsaðra ljósmynda í fasteigna­auglýsingum hér á landi, þar sem gervi­greind er notuð til að breyta raun­verulegum ljós­myndum af eignum eða skapa nýja ásýnd þeirra.

Mannlíf hefur fylgst ítarlega með fasteigna­auglýsingum undan­farna 18 mánuði og á þeim tíma hefur þróunin verið hröð. Við upphaf tíma­bilsins var afar fágætt að sjá falsaðar ljós­myndir sem gerðar höfðu verið með gervi­greind en nú birtast slíkar myndir reglulega í nýjum fasteigna­auglýsingum, jafnvel oft í hverri viku.

Hér er ekki átt við hefð­bundnar tölvu­teikningar sem sýna hvernig óbyggt eða óklárað húsnæði gæti litið út þegar framkvæmdum lýkur. Um er að ræða ljós­myndir af raun­verulegum og full­byggðum fasteignum sem hefur verið breytt með gervi­greind þannig að það sem birtist á myndinni er að hluta til ekki til staðar í eigninni.

Í sumum tilfellum er húsgögnum og öðrum lausa­munum bætt inn á ljós­myndir af tómum rýmum. Í öðrum tilfellum ganga breytingarnar lengra og geta náð til hluta fasteignarinnar sjálfrar, svo sem gólfefna eða fastar innréttingar. Þannig verður til ljósmynd sem byggir á raun­verulegu rými en sýnir ekki að öllu leyti raun­verulegt ástand þess.

Sama her­bergið birt­ist á mis­mun­andi máta í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Miklar umræður sköpuðust á samfélags­miðlum í september um siðferði slíkrar mynd­birtingar eftir að fasteigna­salan Pálsson notaðist við tvær falsaðar ljós­myndir sem unnar höfðu verið með gervi­greind. Hvergi kom fram í auglýsingunni að myndirnar hefðu verið falsaðar eða þeim breytt með þessum hætti.

„Það er til að sýna fram á að hlutir komist fyrir inn í henni, hún er tóm og tilbúin til afhendingar,“ sagði Edwin Árnason, fasteigna­sali hjá Pálsson, við Mannlíf í fyrra þegar hann var spurður hvers vegna þessi leið hefði verið farin.

„Þetta er fallegra en hafa þær tómar, þetta er ekki flókið.“

Aðspurður hvort honum þætti notkun falsaðra ljósmynda með þessum hætti geta verið blekkjandi sagði Edwin svo ekki vera.

„Við höfum öll okkar skoðanir á þessum hlutum. Mér finnst það ekki. Ég myndi ekki nota orðin „að blekkja“. Fólk er ekki að kaupa húsgögn, fólk er að kaupa íbúð. Það er bara verið að sýna mögu­leikann á rýminu.“

Mannlíf benti þá á að parket sem fylgdi íbúðinni virtist einnig vera í mun betra ástandi á fölsuðu ljós­myndinni en á raun­verulegum myndum af eigninni.

„Það sést á hinum myndunum að parketið er ekki stór­glæsilegt og einnig sést þetta þegar fólk kemur og skoðar. Það gera sér allir grein fyrir því sem koma og skoða eignina að parketið var ekki í lagi þannig að í allavega þetta skipti slapp það.“

Auðunn kallaði þetta pínu scam

Tónlistar­maðurinn Auðunn Lúthersson vakti einnig athygli á notkun falsaðra ljósmynda þegar hann seldi íbúð sína við Leifsgötu 10 í janúar.

Þá höfðu verið teknar ljós­myndir af íbúðinni en gervi­greind síðan notuð til þess að breyta þeim og bæta meðal annars húsgögnum og öðrum munum inn í rýmin. Útkoman voru þannig myndir sem litu út eins og ljós­myndir af íbúðinni þótt hluti þess sem sást á þeim hefði aldrei verið fyrir framan mynda­vélina.

„Ég er að selja íbúð mína að Leifsgötu 10 og það er búið að taka þessar fallegu myndir af íbúðinni, nema hvað það er alveg pínu „scam“,“ sagði Auðunn.

„Það er lenskan núna í fasteigna­sölu að maður taki bara fallegar ljós­myndir af íbúðinni tómri, svo er notuð gervi­greind til að teikna inn húsgögn og ég skil það alveg smá. Það gefur aðeins skýrari hvernig það væri að búa í íbúðinni en maður sjái bara einhver tóm herbergi en ég veit það ekki. Þetta er alveg pínu forvitnileg þróun.“

Auðunn spurði fylgjendur sína í kjölfarið hvort þeim þætti þetta vera svindl eða hvort slík notkun gervi­greindar væri í góðu lagi.

Mannlíf ræddi einnig við Grétar Jónasson, framkvæmda­stjóra Félags fasteigna­sala, sem sagði notkun slíkra mynda kalla á ítarlega umræðu, bæði út frá lögum og siða­reglum, enda byði tæknin upp á mikla möguleika til að breyta ljós­myndum.

Til stóð að taka málið fyrir á stjórnar­fundi Félags fasteigna­sala en Grétar svaraði ekki fyrir­spurnum Mannlífs þegar leitað var eftir upplýsingum um niður­stöðu þeirrar umræðu.

Brynhildur Péturs­dóttir, framkvæmda­stjóri Neytenda­samtakanna, hefur jafnframt sagt það mat samtak­anna að taka verði fram þegar myndir sem birtast í fasteigna­auglýsingum eru gerðar með gervi­greind.

Mannlíf hefur síðan rætt við nokkra seljendur fasteigna þar sem falsaðar ljós­myndir hafa verið notaðar. Flestir þeirra segja hugmyndina hafa komið frá fasteigna­sölunum sjálfum og benda meðal annars á að erfiðara sé að selja fasteignir nú en áður.

Málið er jafnframt umdeilt innan fasteigna­sölu­stéttarinnar. Mannlíf ræddi við þrjá fasteigna­sala sem ekki vildu koma fram undir nafni. Sumir þeirra telja að notkun falsaðra ljósmynda geti grafið undan trausti til fasteigna­sala en aðrir telja verið að gera úlfalda úr mýflugu.

Getur ýtt kaupendum frá

Henry Alexander Henrysson, siðfræðingur og doktor í heimspeki, segir erfitt að fella almennan siðferði­legan dóm yfir notkun gervi­greindar enda sé tæknin þegar samofin hversdagslegri notkun fólks á tölvum og snjall­tækjum en öðru máli geti hins vegar gegnt þegar farið er sérstak­lega inn í forrit skapandi gervi­greindar og tæknin látin skapa eða breyta efni fyrir notandann.

Þegar kemur að fasteigna­auglýsingum segir Henry hægt að færa ákveðin rök fyrir því að nota tæknina til þess að sýna mögulega nýtingu rýmis. Til dæmis þurfi þá ekki að flytja húsgögn á milli staða eingöngu til þess að mynda eign.

Mörkin séu hins vegar skýr þegar farið er að breyta fasteigninni sjálfri á myndinni.

„Til dæmis væri ámælis­vert að láta rými stækka eða breyta lögun þess í mynd­vinnslunni. Eitt er að færa til og breyta um lausamuni, það er annað að ljúga til um eðli og gerð húsnæðisins.“

Henry bendir á að ljós­myndarar hafi lengi getað notað tækni sína til að láta rými virðast stærri en þau raun­verulega eru. Gervi­greind megi hins vegar ekki verða til þess að breyta fasteigninni sjálfri.

„Góðir ljós­myndarar hafa í gegnum tíðina getað látið rými virðast stærri en þau eru. Tæknin má ekki gera rýmin stærri en þau eru.“

Þá þurfi sá sem notar tæknina sjálfur að bera ábyrgð á niður­stöðunni.

„Forritin eru auðvitað gervi­greind og búa ekki yfir neins konar dómgreind. Sá sem nýtir sér þau getur ekki búist við að allt sé leyfilegt sem þau kasta út úr sér.“

Henry telur líklegt að gervi­greindar­breyttar ljós­myndir verði meira áberandi í fasteigna­auglýsingum til skamms tíma en að fasteigna­sölu­stéttin muni að lokum þurfa að móta sér skýrari siðferðileg viðmið.

Kaupendur muni einnig hafa áhrif á hversu langt fasteigna­salar geti gengið.

„Mögulega verður einhver toppur núna á næstunni meðan jafnvægi er náð, en mig grunar að eftir­spurnin eftir skapandi mynd­vinnslu komi ekki frá kaupendum – enda ekki þeim í vil.“

Hann telur jafnframt að fasteigna­salar geti tekið ákveðna áhættu með því að birta falsaðar ljós­myndir af eignum sem þeir hafa til sölu.

„Að lokum verður það svo að fasteigna­salar eru jafnvel að taka áhættu og gætu mögulega ýtt væntanlegum kaupendum frá sér með því að bjóða upp á þessar myndir,“ segir Henry að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið