
Akureyri
Mynd: Wikipedia/Skapti Hallgrímsson
Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar mál eftir að nál fannst í súkkulaðistykki sem gefið var í tengslum við hrekkjavökuna á Akureyri í gær. Vísir greindi fyrst frá málinu.
María Borg Gunnars, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfesti að tilkynning um málið hefði borist lögreglu nú á þriðja tímanum í dag.
Myndir af súkkulaðistykkinu voru birtar í Facebook-hópnum Hrekkjavaka á Akureyri. Á þeim virðist sjást nál eða annað oddhvasst járnstykki inni í Milky Way-súkkulaðistykki.
Enginn slasaðist vegna málsins og uppgötvaðist nálin áður en bitið var í stykkið.
Lögreglan hyggst vara almenning á svæðinu við og hvetja fólk til að skoða sælgæti vandlega áður en þess er neytt. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
