
Karlmaður á fertugsaldri lést eftir alvarlega líkamsárás utandyra í Breiðholti í nótt. Annar maður liggur á gjörgæsludeild en þrír menn hafa verið handteknir í tengslum við málið.
Tilkynning um árásina barst lögreglu skömmu fyrir klukkan hálftvö í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang fundust tveir menn með alvarlega áverka sem taldir eru hafa hlotist af hnífsstungum.
Mennirnir voru fluttir á slysadeild, en annar þeirra var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á sjúkrahúsið. Hinn maðurinn liggur á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt.
Lögregla var með mikinn viðbúnað vegna málsins og hóf þegar leit að árásarmönnunum. Þrír menn voru handteknir fljótlega síðar annars staðar í hverfinu vegna rannsóknarinnar.
Mennirnir þrír eru allir íslenskir, líkt og þeir sem urðu fyrir árásinni. Þeir eru nú í haldi lögreglu.
Rannsókn málsins er á frumstigi og veitir lögregla ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.
