1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

9
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

10
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Til baka

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Konan hafði fundið fyrir óþægindum í kvið

Nýfædd barn
Lítið barn eftir fæðinguMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Christian Bowen/Unsplash

41 árs kona fékk heldur betur óvæntar fréttir þegar hún komst að því að hún væri ólétt aðeins nokkrum klukkustundum áður en hún eignaðist son.

Konan, Sammy, hafði fundið fyrir óþægindum í kvið og taldi sjálf að um gæti verið að ræða kviðslit eða tognun eftir reglulegar kviðæfingar. Eftir skoðun tveggja lækna kom hins vegar upp grunur um að hún gæti verið barnshafandi.

Samkvæmt breska dagblaðinu Mirror hafði Sammy ekki haft blæðingar í nokkra mánuði en taldi það tengjast breytingaskeiði. Hún hafði jafnframt misst mikið í þyngd eftir magabandsaðgerð og því hafði lítið sem ekkert sést á henni að hún gengi með barn.

Fyrsta þungunarprófið á læknastofunni reyndist neikvætt en annar læknir taldi sig sjá daufa línu á prófinu og ráðlagði henni að taka annað próf heima. Það reyndist jákvætt.

Sammy gerði sér þó enn enga grein fyrir því að meðgangan væri komin svo langt.

Fór á bráðamóttöku vegna krampa

Síðar sama kvöld fékk Sammy krampa í kviðinn og leitaði á bráðamóttöku. Þar var gerð ómskoðun og kom fljótlega í ljós að barn var í móðurkviði.

„Hann gerði ómskoðunina og byrjaði að segja: „Þarna er fótleggur. Þarna er handleggur. Þarna er bakið,““ sagði Sammy um augnablikið þegar læknir skoðaði hana.

Um klukkan sjö morguninn eftir sendi hún Triston McKend, 38 ára sambýlismanni sínum, skilaboð og sagði honum að hún væri ólétt.

Sammy taldi fyrst að hún gæti verið skammt komin á leið og óttaðist jafnvel að hún væri að missa fóstrið. Starfsfólk sjúkrahússins færði henni hins vegar enn óvæntari tíðindi.

„Svo kom önnur kona inn og sagði: „Þú ert komin af stað í fæðingu.“ Ég sagði: „Fyrirgefðu, nei, það getur ekki verið.“ Hún svaraði: „Jú, barnið er að koma.““

Sonurinn fæddist fimm tímum síðar

Aðeins fimm klukkustundum eftir að Sammy kom á sjúkrahúsið fæddi hún heilbrigðan dreng, Noah, sem vó rúmlega 3,6 kíló.

Hún segir að það hafi tekið tíma að átta sig á því sem hafði gerst og að tengslin við barnið hafi ekki myndast samstundis vegna þess hve skyndilega hann kom inn í líf hennar.

„Ég hugsaði eiginlega bara: Guð minn góður, er hann raunverulegur? Ég gat ekki meðtekið þetta,“ sagði hún.

Sammy telur mikið þyngdartap eftir magabandsaðgerð hafa átt þátt í því að meðgangan uppgötvaðist ekki. Hún hafði misst um 63 kíló og segir þyngd sína aðeins hafa aukist um rúmt kíló frá því í maí þar til hún fæddi.

Hún hafði auk þess verið mjög virk alla meðgönguna. Hún fór meðal annars á tónleika, spilaði fótbolta, fór í fjögurra klukkustunda hjólaferð og tók þátt í vatnsleikfimi aðeins tólf klukkustundum áður en fæðingin hófst.

Triston hyggst nú flytja tímabundið til Bournemouth til að aðstoða Sammy við umönnun Noahs, sem kom foreldrum sínum svo sannarlega á óvart.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå

Gekk berserksgang þegar hann var beðinn um að hysja upp um sig buxurnar.
101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Pólitík

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu
Innlent

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“
Pólitík

„Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir“

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Heimur

Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå
Myndband
Heimur

Maður eyðilagði yfir 1.200 vörur í matvöruverslun í Umeå

Gekk berserksgang þegar hann var beðinn um að hysja upp um sig buxurnar.
Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð
Heimur

101 árs langafi gefur lítið fyrir hefðbundin heilsuráð

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan
Heimur

Að minnsta kosti 35 létust þegar þak grunnskóla hrundi í Pakistan

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið
Heimur

Unnusta RJ setti honum afarkosti stuttu fyrir andlátið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Heimur

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Loka auglýsingu