
Maður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa flutt tæp tvö kíló af kratom til Íslands. Dómur féll í Héraðsdómi Vesturlands í dag, 15. október.
Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 1.975,58 grömmum af kratom, sem innihélt virka efnið mítragýnín í 1,5 prósenta styrkleika.
Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári og var stöðvuð af tollgæslunni við eftirlit með erlendum hraðsendingum í vöruhúsi Icetransport í Hafnarfirði. Maðurinn var skráður bæði sendandi og móttakandi sendingarinnar, en sendandaheimilisfangið var í Tékklandi.
Maðurinn játaði að hafa ætlað að fá efnið sent til Íslands en kvaðst ekki hafa vitað að það væri ólöglegt hér á landi. Fyrir dómi sagði hann kratom vera löglegt og aðgengilegt í Tékklandi og lýsti áhrifum þess sem sambærilegum við sterkt kaffi. Hann sagðist meðal annars hafa notað efnið til að auka orku á næturvöktum og við líkamsrækt.
Sérfræðingur Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði sagði hins vegar fyrir dómi að kratom væri hugbreytandi efni sem hefði örvandi áhrif í litlum skömmtum en sljóvgandi áhrif í stærri skömmtum. Áhrifin væru annars eðlis en áhrif koffíns og gætu verið ópíóíðalík.
Vanþekking á lögum dugði ekki
Dómurinn féllst ekki á þá málsvörn mannsins að hann hefði haft réttmæta ástæðu til að ætla að innflutningurinn væri löglegur. Í niðurstöðunni kemur fram að lögvilla leysi fólk almennt ekki undan refsiábyrgð og að skýrar reglur hafi um nokkurt skeið bannað innflutning á kratom til Íslands.
Maðurinn, sem er fæddur árið 1995, hafði ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess auk þess sem hann gekkst við háttsemi sinni.
Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð. Þá voru 1.975,58 grömm af kratom gerð upptæk.