
101 árs gamall maður í Zhejiang-héraði í austurhluta Kína hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir matarvenjur sínar og ekki síst dálæti sitt á Coca-Cola og Sprite, sem hann drekkur daglega en slíkt þykir óvenjulegt hjá manni á slíkum aldri.
Lu Shizeng er langafi og býr í sveit. Þrátt fyrir háan aldur er hann sagður við góða heilsu og heldur fast í ýmsar venjur sem samræmast ekki endilega hefðbundnum ráðleggingum um hollt mataræði.
Lu fer á fimm daga fresti á markað þar sem hann kaupir meðal annars fisk, rækjur, krabba, svínakjöt og grænmeti. Fram á síðasta ár fór hann sjálfur þangað á þríhjóli en hætti því eftir fall.
Sérstaka athygli hefur vakið dálæti hans á gosdrykkjum. Hann kaupir reglulega Coca-Cola og Sprite og er sérstaklega hrifinn af ísköldu Sprite með nokkrum dropum af hvítvíni.
Matarlystin er einnig góð. Að sögn umönnunaraðila getur hann borðað hálfa skál af hrísgrjónum og heilan disk af kröbbum í einni máltíð.
Lu fylgir föstum svefnvenjum. Hann borðar kvöldmat um klukkan 17, fer að sofa um klukkan 20 og vaknar um fjögur að morgni. Hann segist sjaldan fá kvef, hafa gott minni og vera almennt ánægður með heilsuna.
