
Maður á fertugsaldri eyðilagði yfir 1.200 vörur í verslun Willys í miðborg Umeå í Svíþjóð eftir að hafa gengið berserksgang er honum var sagt að hysja upp um sig buxurnar en þær lágu niður að hnjám.
Á eftirlitsmyndavélum sést hvernig hann hendir tómatsósu, majónesi, ólífum, sojasósu og öðrum vörum á gólfið á innan við fimm mínútum. Hann eyðilagði einnig hillur með glútenlausum vörum.
Farga þurfti vörum að verðmæti yfir 14.000 sænskra króna (um 171.668 ISK) vegna skemmdanna. Neyddist verslunin til að loka klukkan 15.30 til að hægt væri að þrífa og hreinsa húsnæðið. Það olli tekjutapi og auknu álagi á starfsfólk. Kostnaður við þrif og hreinsun var jafnframt mikill.
Maðurinn er þekktur af lögreglu vegna fyrri mála. Nú hefur hann verið ákærður fyrir eignaspjöll og krefst Willys þess að hann greiði 36.350 sænskar krónur (um 445.723 isk) í skaðabætur.
