1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan tengiltvinnbíl vegna slysahættu

3
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

6
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

7
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

8
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

9
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

10
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Til baka

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Segja meðal annars Palestínumenn hafa verið flutta í gegnum Keflavíkurflugvöll til Tel Aviv.

Keflavíkurflugvöllur
KeflavíkurflugvöllurMannlíf bíður eftir svörum frá Isavia og utanríkisráðuneytinu
Mynd: Keflavíkurflugvöllur

Samtökin BDS Ísland segja flugvélar tengdar brottvísunaraðgerðum bandarískra yfirvalda hafa tekið eldsneyti hér á landi og gagnrýna íslenska fjölmiðla fyrir áhugaleysi um málið.

BDS Ísland hefur birt myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem samtökin halda því fram að fjögur flug tengd brottvísunaraðgerðum bandarísku innflytjenda- og tollgæslunnar, ICE, hafi tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli á þessu ári, þar af í eitt skipti þar sem Palestínumenn voru fluttir frá Bandaríkjunum til Tel Aviv í Ísrael.

Samkvæmt upplýsingum BDS Íslands áttu flugin sér stað 27. apríl, 29. júlí, 1. ágúst og 10. september. Samtökin segja að flugvélarnar hafi verið reknar af Journey Aviation og tengist flugunum brottvísunum frá Bandaríkjunum.

brottvisunarflug
Mynd: BDS - Ísland

Sérstaklega er minnst á flugvélina N62FF í myndbandinu, sem samkvæmt BDS Íslandi tók eldsneyti á Keflavíkurflugvelli 10. september.

Einkaþota í eigu viðskiptafélaga Trumps

BDS Ísland bendir á að N62FF sé í eigu bandaríska auðkýfingsins Gil Dezer, sem hefur lengi átt viðskipti við Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Flugvélin hefur einnig komið við sögu í umfjöllun The Guardian og +972 Magazine um flug sem tengjast brottvísun Palestínumanna frá Bandaríkjunum.

Samkvæmt þeirri umfjöllun voru Palestínumenn sem bandarísk yfirvöld höfðu handtekið fluttir með flugvél sem tengdist Journey Aviation. BDS Ísland segir að upplýsingar um flugferðirnar sýni að íslenskur flugvöllur hafi verið notaður sem eldsneytisstöð í tengslum við slík verkefni.

Þá birti Amnesty International á Írlandi opið bréf þar sem sviðupum millilendingum þar í landi á vegum ICE er mótmælt.

Samtökin gagnrýna að íslensk stjórnvöld leyfi aðstöðu hér á landi til flugferða sem þau telja tengjast brottvísunum og mögulegum brotum á alþjóðalögum.

Gagnrýna þögn fjölmiðla

BDS Ísland segir að samtökin hafi komið upplýsingum og gögnum um málið á framfæri við fjölmiðla en að hingað til hafi enginn þeirra brugðist við.

Samtökin kalla eftir skýringu á því hvers vegna flugvélar sem tengjast brottvísunaraðgerðum bandarískra yfirvalda geti tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli.

Samtökin vilja jafnframt að íslensk stjórnvöld rannsaki flugin og kanni hvort notkun Keflavíkurflugvallar í þessum tilgangi samræmist íslenskum lögum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.

BDS Ísland segja að gögn um flugin sýna skýrt að flugvélar tengdar ICE hafi komið við á Keflavíkurflugvelli og tekið þar eldsneyti. Samtökin telja að íslensk stjórnvöld verði að bregðast við og tryggja að íslensk flugvallaraðstaða sé ekki nýtt í aðgerðum sem kunna að brjóta gegn alþjóðalögum.

Mannlíf hefur sent fyrirspurnir á bæði utanríkisráðuneytið og Isavia, um fullyrðingar BDS Íslands í téðu myndbandi og bíður svara.

Hér má sjá myndbandið sem BDS Ísland birti á dögunum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Aðgengi að húsnæðinu við Hlíðasmára var ófullnægjandi við sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum
Heimur

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Risk tók áhættuna alla leið í þrot
Peningar

Risk tók áhættuna alla leið í þrot

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega
Heimur

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda
Heimur

Pokémon-meistari kastaði upp vegna líkamslyktar keppanda

Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd
Heimur

Áform um aftöku í beinni útsendingu harðlega gagnrýnd

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð
Innlent

Fölsuð vegabréf komu upp um karlmenn í Leifsstöð

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk
Innlent

Ætlaði úr landi með þýfi úr Icewear og Jysk

Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Aðgengi að húsnæðinu við Hlíðasmára var ófullnægjandi við sveitarstjórnarkosningarnar í maí.
Húsleit hafin í Ölgerðinni
Innlent

Húsleit hafin í Ölgerðinni

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg
Innlent

Skúli ósáttur við Sif og segir skrifin sérkennileg og sorgleg

Loka auglýsingu