
Árni Guðmundsson, félagsuppeldisfræðingur og formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, gagnrýnir harðlega frumvarp sem liggur fyrir Alþingi og myndi heimila einkaaðilum að selja áfengi í vefverslunum beint til neytenda.
Í grein sem Árni birti í dag á Vísi segir hann frumvarpið vera eina af fjölmörgum tilraunum undanfarinna ára til að breyta fyrirkomulagi áfengissölu hér á landi.
Árni telur frumvarpið fela í sér grundvallarbreytingu á íslenskri áfengisstefnu og ganga gegn einni af grunnstoðum íslenska forvarnarmódelsins.
„Áfengissalar eru ekki velferðarsamtök og það liggur í eðli viðskiptanna að vilja selja sem mest og hagnast eins mikið og kostur er,“ skrifar Árni.
Hann vísar meðal annars til afstöðu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og embættis landlæknis varðandi aðgengi að áfengi. Að sögn Árna hefur WHO bent á norræn sölukerfi á borð við ÁTVR sem mikilvægan hluta lýðheilsustefnu. Þá hafi landlæknir í umsögn um sambærilegt frumvarp varað við aukinni áfengisneyslu, meðal annars meðal ungmenna.
Árni gagnrýnir sérstaklega að meðal flutningsmanna séu þingmenn sem áður hafi lagt áherslu á forvarnir og velferð barna og ungmenna. Nefnir hann þar Valdimar Breiðfjörð Birgisson, Maríu Rut Kristinsdóttur, Söndru Sigurðardóttur og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
Hann telur þingmennina þurfa að skýra hvernig stuðningur þeirra við frumvarpið samræmist fyrri áherslum þeirra í forvarnarmálum.
„Það er ekki hægt að tala fyrir öflugum forvörnum gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna en styðja um leið breytingar á sölukerfinu,“ skrifar Árni.
Hann segir að lokum dapurlegt að Alþingi verji tíma í málið þegar mörg brýn verkefni blasi við í velferðar- og forvarnarmálum barna og ungmenna.
