
Margareta Ingeborg Thome, prófessor emerita við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, er látin, 84 ára að aldri.
Morgunblaðið greinir frá andláti hennar.
Margareta, sem kölluð var Marga, fæddist í Þýskalandi árið 1942 og flutti til Íslands árið 1973. Hún var menntuð hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og hóf kennslu við Háskóla Íslands árið 1974. Hún varð fyrsti fastráðni kennarinn við námsbraut í hjúkrunarfræði árið 1977 og gegndi síðar stöðu dósents og prófessors. Árið 1974 giftist hún Erlingi Bertelssyni lögfræðingi.
Marga átti stóran þátt í þróun hjúkrunar- og ljósmóðurfræðináms við Háskóla Íslands og var fyrsti deildarforseti hjúkrunarfræðideildar á árunum 2000 til 2003. Hún lét af störfum árið 2012.
Marga var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2010 og gerð að heiðursfélaga Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga árið 2019.
Hún lætur eftir eina dóttur, Katrínu, og þrjú barnabörn.