
Nígerísk stjórnvöld hafa hafið umfangsmikla leitar- og björgunaraðgerð eftir að herflugvél með 32 manns innanborðs hrapaði í Ondo-ríki í suðvesturhluta landsins.
Flaki flugvélarinnar hefur verið fundið nærri flotastöðinni í Igbokoda, að sögn Festusar Keyamo, flugmálaráðherra Nígeríu, í dag. Flugvélin hvarf af ratsjá á leið sinni frá Benín til Lagos.
„Flakið hefur fundist og leitar- og björgunaraðgerðir standa yfir,“ sagði Keyamo í færslu á samfélagsmiðlum.
Hann bætti við að fyrstu upplýsingar bentu til þess að 25 farþegar og sjö manna áhöfn hefðu verið um borð.
Flugumferðarstjórar misstu samband við flugvélina klukkan 9.13 að staðartíma, eða 8.13 að íslenskum tíma. Ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi við hana í gegnum talstöð báru ekki árangur.
Nígeríski flugherinn sagði að um ATR-42-flugvél hefði verið að ræða sem var á reglubundnu flugi til Lagos. Björgunarsveitir hafa verið sendar á slysstaðinn.
Keyamo sagði að hann hefði rætt við yfirmann nígeríska flughersins, Sunday Kelvin Aneke, og boðið fram „fullan stuðning og aðstoð“ flugmálaráðuneytisins við björgunaraðgerðirnar.
Þegar þetta er skrifað hafa yfirvöld enn ekki staðfest hvort einhver hafi látist eða slasast og ekki liggur fyrir hversu mikið tjón varð á flugvélinni.
