1
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

2
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

3
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

4
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

5
Fólk

Notalegt fjölskylduhús með á við garðinn til sölu

6
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

7
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

8
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

9
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

10
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Til baka

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

Samtök leigjenda hafa áhyggjur af þróuninni

Húsaleiga
Húsaleigan sligar margaVerðbólguþrýsingurinn eykst segja Samtök leigjenda
Mynd: Jakub Żerdzicki / Unsplash

Auglýst leiguverð á höfuðborgarsvæðinu er að meðaltali 9,3 prósentum hærra en verð í nýjum leigusamningum sem skráðir voru hjá HMS í ágúst, samkvæmt könnun Samtaka leigjenda.

Samtökin tóku saman upplýsingar úr yfir 600 leiguauglýsingum í síðustu viku. Könnunin nær til 534 heilla eigna á höfuðborgarsvæðinu, að herbergjaleigu undanskilinni.

Meðalleiguverð í auglýsingunum var 4.691 króna á fermetra á mánuði. Til samanburðar var meðalverð í nýjum leigusamningum sem skráðir voru hjá HMS í ágúst 4.290 krónur á fermetra.

Fyrir 80 fermetra íbúð nemur munurinn rúmum 32 þúsund krónum á mánuði, eða um 385 þúsund krónum á ári.

Segja þetta geta aukið verðbólguþrýsting

Samtök leigjenda telja niðurstöðurnar benda til þess að frekari verðbólguþrýstingur gæti skapast þegar hærra auglýst leiguverð skilar sér inn í nýja leigusamninga.

Reiknuð húsaleiga hafði þegar veruleg áhrif á verðbólgu í ágúst. Samkvæmt Hagstofu Íslands hækkaði vísitala neysluverðs þá um 0,20 prósent og lagði reiknuð húsaleiga 0,18 prósentustig til hækkunarinnar.

Gögn samtakanna sýna jafnframt að meðalfermetraverð í nýjum leigusamningum hjá HMS var 4.151 króna í desember 2025. Auglýsta leiguverðið í könnuninni í september er því 13 prósentum hærra en þá.

Ársleiga 6,84 prósent af kaupverði

Samtök leigjenda bera einnig saman leiguverð og kaupverð íbúðarhúsnæðis.

Miðað við meðalfermetraverð í könnuninni og meðalfermetraverð seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu í ágúst nemur ársleiga 6,84 prósentum af kaupverði íbúðar.

Samkvæmt útreikningum samtakanna jafngildir samanlögð leiga í 14,6 ár, eða innan við 15 ár, kaupverði íbúðar ef gert er ráð fyrir óbreyttu leigu- og kaupverði.

Leigjandinn eignast þó engan hlut í húsnæðinu á móti leigugreiðslunum.

Samtök leigjenda segja þetta hlutfall óeðlilega hátt.

Munur á Norðurlöndunum

Samtökin setja niðurstöðurnar einnig í samhengi við landsviðmið fyrir leigu- og kaupverð á fermetra árið 2025. Þar er hlutfall ársleigu af kaupverði eftirfarandi:

  • Ísland: 4,55 prósent
  • Danmörk: 2,51 prósent
  • Svíþjóð: 3,70 prósent

Niðurstaða könnunar Samtaka leigjenda, 6,84 prósent, byggir hins vegar á auglýstu leiguverði á höfuðborgarsvæðinu í september 2026 og er því ekki sambærilegt landsviðmið fyrir árið 2025.

Samtök leigjenda kalla eftir viðbrögðum stjórnvalda og segja húsnæðisstefnu þurfa að taka mið af því verði sem fólk mætir þegar það leitar sér að heimili.

„Leigjendur þurfa húsnæði núna — ekki fleiri fyrirheit,“ segir í tilkynningu samtakanna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Viðurkenndi að hafa kallað hann meðal annars apa, fávita og skíthæl
Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli
Heimur

Sótölvaður Kanadamaður stal flamingófugli af hóteli

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari
Heimur

75 ára klámstjarna segist aldrei hafa verið hamingjusamari

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París
Heimur

Einn látinn og fjórir alvarlega særðir í skotárás nærri París

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása
Heimur

Öllum fjórum flugvöllum Moskvu lokað vegna drónaárása

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík
Innlent

Ari Trausti segir of snemmt að afskrifa eldgosahættu við Grindavík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd
Innlent

Aragorn fékk Traust hjá Mannanafnanefnd

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife
Heimur

Kirkjubækur frá 19. öld hjálpuðu til við að upplýsa morð á Tenerife

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring
Heimur

Þrír ítalskir hobbit­ar lögðu upp í ævintýraför til að skila týndum hring

Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar
Peningar

Þriggja milljarða hagnaður hjá móðurfélagi Össurar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur
Peningar

Lögmannsstofa gjaldþrota með rúmlega 120 milljónir króna í kröfur

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega
Peningar

Stór hluthafi Ölgerðarinnar tekur Kveik mjög alvarlega

Loka auglýsingu