Ragnar Önundarson, viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankastjóri, telur fyrirhugað hlutafjárútboð Bláa lónsins ótímabært í ljósi áframhaldandi óvissu vegna eldsumbrota við Svartsengi.
Ragnar gagnrýnir tímasetningu útboðsins í færslu á Facebook og segir að ekki sé tímabært að bjóða almenningi að fjárfesta í félaginu á meðan óvíst sé hvort eldvirkni á svæðinu sé lokið.

„Mér finnst hlutafjárútboð Bláa lónsins ótímabært, í ljósi þess að eldsumbrotum við Svartsengi virðist ekki lokið. Lífeyri almennings þarf að ávaxta með tryggum hætti,“ skrifar Ragnar.
Á hluthafafundi Bláa lónsins í lok október var samþykkt að ráðast í almennt hlutafjárútboð og stefna að skráningu hlutabréfa félagsins á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Fyrirhuguð skráning hefur vakið athygli, ekki síst vegna þess að rekstur Bláa lónsins er nátengdur jarðhræringum á Reykjanesskaga. Óvissa um framhald eldsumbrota við Svartsengi hefur áhrif á starfsemi fyrirtækisins og framtíðarhorfur þess.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



























Athugasemdir