Gæludýraeigendur í Ástralíu eru hvattir til að vera á varðbergi þar sem fuglaflensa heldur áfram að breiðast út um landið. Sérfræðingar óttast að faraldurinn geti orðið umfangsmeiri yfir sumarmánuðina.
Mörg dýr hafa þegar orðið fuglaflensunni að bráð í Ástralíu síðustu mánuði, þar á meðal mörgæsir, höfrungar og refir. Um er að ræða hina hættulegu H5N1-stofngerð veirunnar.
Breytingar hafa einnig orðið á skráningu smita. Alríkisstjórn Ástralíu skráir nú atburði tengda faraldrinum í stað einstakra smittilfella.
Michelle Wille, vísindamaður við háskólann í Melbourne, segir að breytingin geri erfiðara að fylgjast með útbreiðslu veirunnar. Því sé óljóst hvort smitum fjölgi eða fækki.
„Þetta þýðir að út frá þeim gögnum sem birt eru á vefnum birdflu.gov.au getum við ekki dregið miklar ályktanir og alls ekki fullyrt að faraldurinn sé í rénun,“ segir hún.
Hún bendir á að þegar dýr drepist daglega yfir heilan mánuð séu hugsanlega aðeins fyrstu dýrin talin með í tölfræðinni.
Wille segir gæludýraeigendur þurfa að gæta þess að halda dýrum sínum frá veikum fuglum. Hún vísar meðal annars til dæma frá Póllandi og Bandaríkjunum þar sem kettir og eigendur hænsna í heimagörðum hafa smitast.
„Við vitum að H5N1-fuglaflensan hefur haft töluverð áhrif á ketti, sérstaklega ketti sem halda sig í fjósum á mjólkurbúum og ketti sem ganga frjálsir utandyra,“ segir hún.
Eigendur hænsna í heimagörðum þurfi jafnframt að fylgjast reglulega með upplýsingum frá yfirvöldum á sínu svæði, kynna sér gildandi reglur og þekkja einkenni sjúkdómsins. Þeir þurfi einnig að vita hvernig tilkynna eigi veik eða dauð hænsni.
„Veiran er komið til að vera“
Fleiri sérfræðingar taka undir áhyggjur Wille og vara við því að aðeins sé tímaspursmál hvenær veiran breiðist út til fleiri dýrategunda.
Adrian Esterman, prófessor í líftölfræði við háskólann í Adelaide, segir hænur í heimagörðum sérstaklega berskjaldaðar vegna náinna samskipta við villta fugla.
„Þetta er ekki að fara neitt. Veiran er komin og hún er komin til að vera,“ sagði hann í samtali við news.com.au.
Hann segir gæludýr almennt vera í hættu en kettir séu mun berskjaldaðri en hundar. Kattaeigendur þurfi því sérstaklega að vera á varðbergi.
Joanne Sillince, fyrrverandi framkvæmdastjóri Australian Chicken Growers Council, segir marga bíða þess að ástandið versni enn frekar enda sé veiran bæði hreyfanleg og óútreiknanleg.
„Veiran hefur nú greinst í 40 mismunandi tegundum spendýra. Þetta er inflúensuveira sem hagar sér á mjög óvenjulegan hátt,“ segir hún.
„Þessi inflúensuveira hefur aldrei hagað sér eins og það sem við myndum kalla venjulega flensuveiru.“
Emily Buddle, vísindamaður við háskólann í Adelaide, segir hænur í heimagörðum í mestri hættu. Þær gangi oft lausar og geti því komist í snertingu við villta fugla.
Hún leggur þó áherslu á að fólk eigi að vera vakandi en ekki óttaslegið.
Stjórnvöld þurfi að upplýsa almenning betur
Bæði Buddle og Esterman segja stjórnvöld bera ábyrgð á því að upplýsa almenning með skýrum og réttum hætti um hættuna af fuglaflensu svo fólk geti undirbúið sig ef faraldurinn magnast.
„Það er ekki síður á ábyrgð stjórnvalda en eigenda hænsna í heimagörðum að tryggja að fólk sé upplýst,“ segir Buddle.
Hún bendir á að fólk hafi lengi getað haldið hænur í heimagörðum án þess að hafa miklar áhyggjur af smitsjúkdómum. Raunin sé hins vegar sú að hænur séu búfénaður og smitsjúkdómar geti borist á milli þeirra líkt og annarra dýra.
Esterman segir stjórnvöld vissulega hafa gripið til ýmissa aðgerða en að viðbrögðin hefðu mátt vera hraðari.
„Þau hafa staðið sig afskaplega illa í að koma upplýsingum um svona mál til almennings,“ segir hann.
Beth Cookson, yfirdýralæknir Ástralíu, segir stjórnvöld taka faraldurinn alvarlega, þótt fuglaflensan hafi ekki haft áhrif á alifuglaiðnað landsins.
„Nú þegar H5-fuglaflensan er komin til landsins verður áframhaldandi eftirlit nauðsynlegt. Það verður í höndum einstakra fylkja og yfirráðasvæða,“ segir hún.
Áströlsk stjórnvöld hafi frá árinu 2024 varið meira en 270 milljónum ástralskra dala til að efla vöktun, viðbúnað og viðbragðsgetu vegna fuglaflensunnar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir