Félagið Ísland-Palestína krefst þess að Morgunblaðið biðjist opinberlega afsökunar á birtingu myndar af Saraa Almasri í frétt um fólk sem þiggur fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Félagið segir myndina hafa verið tekna á mótmælum gegn þjóðarmorði á Gaza og að hún tengist fréttaefninu á engan hátt.
Félagið gagnrýnir myndbirtinguna harðlega í yfirlýsingu. Þar segir að hún virðist ætlað að varpa neikvæðu ljósi á Palestínumenn og konur í umfjöllun um fólk sem þiggur fjárhagsaðstoð frá borginni.
Félagið gagnrýnir einnig það sem það segir vera tilraun sumra fjölmiðla til að vekja neikvæð hugrenningatengsl hjá lesendum. Þeir láti að því liggja að Palestínumenn séu baggi á samfélaginu og valdi ófriði, meðal annars með því að taka þátt í mótmælum.
Félagið bendir jafnframt á að myndin af Saraa Almasri hafi verið fjarlægð úr frétt Morgunblaðsins á netinu eftir mótmæli. Hún sé þó enn í prentaðri útgáfu blaðsins, sem dreift er ókeypis um landið á fimmtudögum.
Af þeim sökum krefst Ísland-Palestína þess að Morgunblaðið biðjist Almasri opinberlega afsökunar.
Í lok yfirlýsingarinnar segir félagið að það muni áfram sýna palestínsku þjóðinni samstöðu, óháð því hvort fólk sé íslenskt, palestínskt eða af öðrum þjóðernum.
Hér má sjá yfirlýsinguna í heild sinni:
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir