Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Það var mjög sárt og niðurlægjandi að sjá mynd af mér notaða með þessum hætti“

Saraa Almasri gagn­rýnir Morg­un­blaðið fyrir að birta mynd af henni með frétt sem teng­ist henni ekki. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún leiti réttar síns.

Palest­ínsk kona sem starfar á leik­skóla í Reykja­vík segir mynd­birt­ingu Morg­un­blaðs­ins hafa verið sær­andi og ábyrgð­ar­lausa. Hún hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún leiti réttar síns vegna máls­ins.

Saraa Almasri, palest­ínsk kona sem starfar á leik­skóla í Reykja­vík, segir það hafa verið mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá ljós­mynd af sér not­aða sem aðal­mynd með frétt Morg­un­blaðs­ins um fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar til fólks af erlendum upp­runa.

Mynd­birt­ingin hefur vakið mikla gagn­rýni, meðal ann­ars vegna þess að myndin tengd­ist ekki efni frétt­ar­innar. Ljós­mynd­inni hefur nú verið skipt út fyrir mynd af Ráðhúsi Reykja­víkur á vef Morg­un­blaðs­ins en er eðli máls­ins sam­kvæmt, enn á prent­uðu blaði mið­ils­ins sem dreift var frítt um allt land í gær.

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá ljós­mynd af mér not­aða sem aðal­mynd í frétt Morg­un­blaðs­ins, þrátt fyrir að myndin hefði ekk­ert með efni frétt­ar­innar að gera. Mér fannst þetta bæði óvið­eig­andi og ábyrgð­ar­laust,“ segir Saraa í við­tali við Mannlíf.

Hún segir sig vera vinnu­sama konu sem leggi metnað sinn í starf sitt og sjálf­stæði. Hún hafi starfað á leik­skóla í þrjú ár og sinni starfi sínu og skyldum af alúð á hverjum degi.

„Þess vegna var sér­stak­lega sárt að sjá mynd af mér not­aða í sam­hengi sem á ekk­ert skylt við mig eða mitt líf.“

Deili­myndMorg­un­blaðið birti mynd af Saraa á Facebook, eins og í blað­inu og mbl.is, í því sam­hengi að útlend­ingar þiggi fjár­hags­að­stoð.

Saraa segir það hafa sært sig mest að hugsa til þess að fólk sem þekki hana ekki gæti séð mynd­ina og dregið rangar álykt­anir um hana án þess að vita nokkuð um líf hennar eða aðstæður.

Hún bendir á þá ábyrgð sem hvíli á fjöl­miðlum þegar þeir miðli upp­lýs­ingum og segir alvar­legt þegar ljós­mynd af ein­stak­lingi sé notuð í sam­hengi sem gefi ranga mynd af honum.

„Mann­eskja er ekki skraut­mynd fyrir frétt. Á bak við hverja ljós­mynd er raun­veru­leg mann­eskja með líf, fjöl­skyldu, til­finn­ingar og reisn,“ segir hún.

Saraa segir að hún hefði aldrei sam­þykkt notkun mynd­ar­innar með þessum hætti hefði hún verið spurð. Hún telur mik­il­vægt að Morg­un­blaðið taki ábyrgð á ákvörð­un­inni og útskýri hvernig hún hafi verið tekin.

„Fjöl­mið­ill af þess­ari stærð­argráðu ætti að sýna meiri ábyrgð og virð­ingu gagn­vart fólki,“ segir hún.

Hefur ekki ákveðið hvort hún kærir

Aðspurð hvort hún íhugi að kæra Morg­un­blaðið segir Saraa að hún hafi ekki tekið neina ákvörðun um það.

„Ég vil ekki þurfa að standa í deilum eða fara út í laga­legt ferli vegna þessa máls. Ég hefði aldrei ímyndað mér að lenda í slíkum aðstæðum og þetta er ekki staða sem ég hefði nokkurn tíma óskað mér.“

Hún segir málið snú­ast um meira en eina ljós­mynd.

„Fyrir mér snýst þetta ekki aðeins um eina ljós­mynd, heldur um virð­ingu, ábyrgð og rétt hvers ein­stak­lings til þess að vera ekki settur í sam­hengi sem end­ur­speglar ekki raun­veru­leika hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu