Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Innlent

„Þessi fámenni, fúl­lyndi hópur öskrar hærra en venju­legt full­orðið fólk“

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Heimur

Gagn­rýnir hetju­dýrkun á Karl Bushby

Heimur

Ísra­elskur veð­ur­frétta­maður gerði grín að flóð­unum á Gaza

Innlent

„Tími und­an­þága og fresta í svína­haldi er lið­inn“

Gunnar Þórarinsson fyrrverandi bæjarfulltrúi látinn

Gunnar Þórarinsson fyrrverandi bæjarfulltrúi látinn

Gunnar Þór­ar­ins­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ, lést á Hjúkr­un­ar­heim­il­inu Nes­völlum 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, 77 ára að aldri. Frá and­láti hans var greint í Vík­ur­fréttum.

Gunnar fædd­ist í Reykja­vík 11. apríl 1949 og ólst upp í Voga­hverf­inu. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík árið 1969, húsa­smíða­námi frá Iðn­skól­anum í Reykja­vík 1972 og cand.oecon.-prófi í við­skipta­fræði frá Háskóla Íslands árið 1975.

Hann starf­aði meðal ann­ars hjá Verð­lags­skrif­stof­unni og kenndi við­skipta­greinar við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­nesja í 15 ár. Síðar stofn­aði hann og rak Rekstr­ar­þjón­ust­una ásamt eig­in­konu sinni.

Gunnar var bæj­ar­full­trúi í Reykja­nesbæ árin 2010–2022, fyrst fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn en síðar fyrir Frjálst afl, sem hann stofn­aði ásamt fleirum árið 2014. Hann var for­seti bæj­ar­stjórnar 2010–2011 og for­maður bæj­ar­ráðs 2011–2014. Þá var hann stjórn­ar­for­maður HS Veitna árin 2015–2019.

Hann lét einnig mikið til sín taka í íþrótta­starfi á Suð­ur­nesjum. Gunnar lék knatt­spyrnu og hand­bolta með Fram, Breiða­bliki og Njarðvík, var for­maður knatt­spyrnu­deildar UMFN og Íþrótta­banda­lags Suð­ur­nesja. Þá var hann for­maður Golf­klúbbs Suð­ur­nesja árin 2002–2008. Hann hlaut ýmsar við­ur­kenn­ingar fyrir störf sín að íþrótta­málum.

Gunnar sat jafn­framt um ára­bil í sókn­ar­nefnd Ytri-Njarð­vík­ur­kirkju.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona hans er Steinunn Sig­hvats­dóttir. Þau eign­uð­ust þrjú börn og áttu 12 barna­börn og eitt barna­barna­barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Tilkynnt um ungmenni vegna afbrigðilegrar hegðunar við sundlaug í Hafnarfirði
Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Heimur

Russell Brand dæmdur í tíu og hálfs árs fang­elsi

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Minning

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Minning

Arin­björn Jóhanns­son er fall­inn frá

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá