Annar mannanna sem handteknir voru í tengslum við manndráp í Breiðholti í Reykjavík verður áfram í gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald í dag, eða til 7. desember, á grundvelli almannahagsmuna.
Hinn maðurinn, sem er faðir mannsins sem er í gæsluvarðhaldi, er hins vegar laus úr haldi lögreglu.
Mennirnir eru feðgar og voru handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á manndrápi sem átti sér stað í Breiðholti aðfaranótt 1. nóvember. Karlmaður á fertugsaldri lést eftir hnífstunguárás og annar maður hlaut alvarlega áverka.
Feðgarnir voru upphaflega úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Samkvæmt fyrri fréttum hefur rannsóknin meðal annars beinst að mögulegri fjárkúgun og tengslum þeirra sem að málinu komu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir