Einn einstaklingur gistir fangageymslur lögreglunnar samkvæmt dagbók lögreglu, en nokkur verkefni komu til kasta lögreglumanna í nótt og í morgun.
Meðal annars var tilkynnt um tvo einstaklinga sem reyndu að brjótast inn í húsnæði í hverfi 104. Þá barst tilkynning um mann sem öskraði í hverfi 107. Lögregla leitaði að manninum en fann hann ekki.
Ölvuðum einstaklingi var vísað af veitingastað í hverfi 221. Einnig var tilkynnt um ólæti ungmenna við sundlaug í hverfi 201, en þau voru farin þegar lögregla kom á vettvang.
Í öðru tilviki var tilkynnt um ungmenni við sundlaug í hverfi 220 vegna hegðunar sem þótti afbrigðileg. Eftir samtal við lögreglu héldu ungmennin sína leið.
Lögregla sinnti einnig umferðaróhappi í hverfi 108 þar sem bifreið valt. Ekki lá fyrir hvort einhver hefði slasast. Þá var tilkynnt um eld í ruslatunnu í hverfi 110.
Lögregla sinnti einnig ýmsum umferðarmálum. Í dagbók hennar kemur fram að upptalningin nái ekki yfir öll verkefni lögreglu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir