Breski grínistinn og rithöfundurinn David Walliams hefur verið sakaður um að hafa misnotað frægð sína og áhrif til að komast í kynferðisleg samskipti við ungar konur, þar á meðal stúlkur sem hann kynntist þegar þær voru aðeins 15 ára. Þetta kemur fram í umfangsmikilli rannsóknarfrétt The Guardian og ITV News.
Konurnar lýsa því hvernig Walliams hafi haft samband við þær í gegnum samfélagsmiðla, tölvupóst og síma, boðið þeim aðstoð við feril þeirra og veitt þeim sérstaka athygli áður en samskiptin tóku að snúast um kynlíf.
Ein þeirra, sem blaðið kallar Alex, segir að hún hafi verið 15 ára þegar Walliams hafði fyrst samband við hana árið 2004. Hann var þá 32 ára og hafði nýlega öðlast frægð með gamanþáttunum Little Britain. Hún hafði sent honum handrit sem hún hafði skrifað og segir hann hafa boðið henni leiðsögn og aðstoð við að koma sér áfram í grínheiminum.
Í frétt The Guardian segir að Alex hafi veirð nýkomin heim úr skólanum og setið í svefnherberginu sínu að horfa á The Simpsons þegar síminn hringdi. Hún man vel fyrstu orð hans:
„Hæ, þetta er David Walliams. Þú veist, þessi úr sjónvarpinu!“
Þetta var í janúar 2004. Alex var 15 ára og undirbjó sig fyrir lokapróf í skólanum. Walliams var þá 32 ára og rísandi stjarna í gamanþáttunum Little Britain.
Nokkrum dögum áður hafði Alex hitt Walliams á aðdáendaviðburði þar sem hann áritaði myndir í hlutverki sínu sem Lou. Hún man eftir því að hann sagði við hana: „Þú ert mjög aðlaðandi ung kona.“
Alex dreymdi um að verða handritshöfundur og hafði afhent honum nokkur handrit sem hún hafði skrifað. Hún bjóst ekki við að hann hefði samband, en þegar hann hringdi varð hún svo spennt að hún skrifaði samtalið niður á fjórar A4-síður.
„David Walliams hringdi í mig!!“ skrifaði hún og bætti við að honum hefðu þótt handritin hennar „MJÖG SKEMMTILEG“. Hún tók einnig fram að hann hefði orðið hissa þegar hún sagði honum að hún væri aðeins 15 ára.
Þau ræddu meðal annars um prófin hennar og möguleikann á að hann útvegaði henni miða á sýningu á Little Britain. Í lok símtalsins gaf hann henni netfangið sitt eftir að hún lofaði að deila því ekki með öðrum.
„Hann sagðist treysta mér,“ skrifaði hún.
Næstu tvö árin áttu þau nokkur símtöl og skiptust á fjölda tölvupósta. Alex segist hafa verið undrandi á því að svo þekktur grínisti skyldi bjóða henni aðstoð við að koma sér áfram. Þegar hún var orðin 17 ára voru þau farin að stunda kynlíf, samkvæmt frásögn hennar.
„Mig langar að kasta upp. Ég hata hann. Líkaminn bregst við þegar ég hugsa um þetta,“ er haft eftir henni í fréttinni.
Önnur kona, sem kölluð er Jade í fréttinni, segir Walliams hafa haft samband við sig á MySpace þegar hún var 15 ára og hann 36 ára. Hún lýsir því að hann hafi boðið henni á fund í Lundúnum, spurt hana hvort hún hefði áður stundað kynlíf og síðar boðið henni heim til sín. Hún segir að hann hafi reynt að eiga við hana kynferðisleg samskipti en hætt þegar hún dró sig undan.
Fleiri konur lýsa sambærilegri hegðun. Ein þeirra segir Walliams hafa ítrekað leitað eftir kynferðislegum samskiptum þrátt fyrir að hún hefði aðeins áhuga á vináttu. Önnur segir hann hafa reynt að kyssa sig og beðið hana um að gista hjá sér.
Rannsóknin tekur einnig til hegðunar hans á vinnustöðum. Fyrrverandi samstarfsfólk úr sjónvarpsþættinum Britain’s Got Talent segir að hann hafi sent ungum kvenkyns starfsmönnum persónuleg skilaboð og gert athugasemdir við útlit þeirra. Þá hafi starfsfólk HarperCollins, útgefanda bóka hans, rætt áhyggjur af framkomu hans við yngri konur.
HarperCollins hóf innri rannsókn árið 2023 eftir að starfsfólk lýsti áhyggjum af hegðun hans. Að minnsta kosti fimm konur ræddu reynslu sína við stjórnendur. Fyrirtækið hætti síðar að gefa út verk hans og tilkynnti í september að það myndi ekki lengur gefa út bækur hans.
Hafnar ásökununum
Walliams hafnar ásökununum. Lögmenn hans segja hann ekki hafa beitt ungar konur tælingu eða misnotað aðstöðu sína til að fá þær til kynferðislegra samskipta. Hann neitar einnig ásökunum um kynferðislega áreitni á vinnustöðum.
Í bréfi til blaðamanna sagðist Walliams sjá eftir því að hafa stundum verið hugsunarlaus í samskiptum við konur sem hann hefði átt lausleg kynferðisleg sambönd við. Hann sagðist þó aldrei hafa misnotað frægð sína eða valdastöðu.
„Ég er ekki kynferðislegt rándýr. Ég hef ekki brotið lög,“ sagði hann meðal annars.
The Guardian og ITV News ræddu við yfir 100 einstaklinga við gerð rannsóknarinnar. Nokkrir lýstu jákvæðri reynslu af samskiptum sínum við Walliams, en margir höfðu áhyggjur af framkomu hans við konur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir