Leðurblakan sem sást flögra yfir Fellabæ á sunnudag er enn ófundin þrátt fyrir leit starfsmanna Matvælastofnunar og Náttúrustofu Austurlands. Stofnanirnar biðla til almennings að láta strax vita verði hennar vart. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.
Það var Kolbrún Þóra Sverrisdóttir, fuglasérfræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands, sem náði myndskeiði af dýrinu frá heimili sínu. Stefnt er að því að handsama leðurblökuna áður en hún kemst í snertingu við önnur dýr, enda geta leðurblökur borið veirur sem valdið geta alvarlegum sjúkdómum í mönnum og dýrum.
Líkur á smiti eru taldar litlar en fólki er ráðlagt að snerta ekki dýrið eða reyna að handsama það. Ef það sést á að tilkynna það til Matvælastofnunar eða lögreglu og gefa upp nákvæma staðsetningu, helst hnit.
Ekki er talið líklegt að leðurblakan geti lifað lengi í íslenskri náttúru þar sem lítið er um skordýr sem hún nærist á á þessum árstíma og kuldinn getur reynst henni erfiður. Talið er líklegast að hún hafi borist til landsins með skipi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir