Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, er látinn, 73 ára að aldri. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi í gærmorgun eftir erfið veikindi undanfarna mánuði.
Morgunblaðið greinir frá andlátinu.
Mörður fæddist í Reykjavík 30. október 1953. Foreldrar hans voru Árni Björnsson fræðimaður og rithöfundur og Vilborg Harðardóttir, varaþingmaður og blaðamaður. Eftirlifandi eiginkona hans er Linda Vilhjálmsdóttir, sjúkraliði og skáld, og dóttir hans er Ölrún Marðardóttir.
Mörður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973 og BA-prófi í íslensku og málvísindum frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Osló árið 1978. Í framhaldinu stundaði hann nám í málvísindum við Sorbonne-háskóla í París á árunum 1978 til 1981.
Hann átti fjölbreyttan starfsferil og starfaði meðal annars hjá Orðabók Háskólans. Þá var hann blaðamaður á Þjóðviljanum og síðar ritstjóri blaðsins. Hann gegndi einnig ritstjórastörfum hjá Bókaútgáfu Máls og menningar og Eddu – útgáfu.
Mörður lét einnig til sín taka í stjórnmálum og fræðastörfum. Hann starfaði fyrir Samfylkinguna og sinnti sjálfstæðum rannsóknum á sviði íslenskra fræða. Hann sat á Alþingi fyrir Samfylkinguna árin 2003 til 2007 og aftur frá 2010 til 2013.
Auk þess sat hann í útvarpsráði og síðar í stjórn Ríkisútvarpsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






























Athugasemdir