Google hefur birt árlegan lista sinn yfir vinsælustu jólagjafir ársins 2026. Listinn, sem nefnist Holiday 100, byggir á leitarsögu notenda og sýnir hvaða vörur hafa vakið mesta athygli á árinu. Þar má finna allt frá tískuvörum og snyrtivörum til raftækja og klassískra leikfanga.
Samkvæmt Google fara fram meira en milljarður leita sem tengjast verslun á hverjum degi. Fyrirtækið hefur nýtt þessar upplýsingar til að taka saman lista yfir þær vörur sem gætu orðið sérstaklega vinsælar í jólapökkunum í ár.
Gamla tískan snýr aftur
Það vekur athygli að ýmsar vörur sem nutu vinsælda á árum áður eru aftur komnar í tísku. Leit að sandölum með lágum, mjóum hælum, svokölluðum kitten heels, jókst um 295 prósent á árinu.
Einnig jókst leit að Nike V5 RNR strigaskóm um 150 prósent. Jakkar í nytjastíl, svokallaðir utility jackets, hafa sömuleiðis slegið í gegn og aldrei verið jafn mikið leitað að þeim.
Snyrtivörur og tæknigræjur vinsælar
Ilmvötn eru sérstaklega vinsæl í ár og eru ilmvatnsgjafasett sú tegund gjafasetta sem mest hefur verið leitað að.
Áhugi á snyrtitækjum hefur einnig aukist verulega. Leit að sérstökum andlitsburstum, sem ætlaðir eru til að örva sogæðakerfið og móta andlitið, jókst um heil 400 prósent.
Þá jókst leit að hárvörum frá Cécred um 160 prósent og hljóðnemum fyrir hlaðvörp um 115 prósent.
Klassísk leikföng aftur í jólapakkana
Gamaldags leikföng virðast einnig vera að sækja í sig veðrið. Leit að stillanlegum hjólaskautum fyrir börn jókst um 180 prósent og leit að klassískum leikfangalestum um 240 prósent.
Listinn gefur þannig til kynna að jólagjafir ársins einkennist bæði af nostalgíu, snyrtivörum og auknum áhuga á skapandi áhugamálum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir