Ökumaður sem hlaut 360 þúsund króna sekt og var sviptur ökurétti í þrjú ár vegna ölvunar- og hraðaksturs hefur ekki haft erindi sem erfiði við að fá viðurlögin felld úr gildi en hann óskaði eftir að umboðsmaður Alþingis skoðaði málið.
Málið á rætur að rekja til sektargerðar lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá 24. febrúar síðastliðnum. Ökumaðurinn hafði verið stöðvaður á 122 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var 90 kílómetrar á klukkustund. Vínandamagn í blóði hans mældist 0,66 prómill.
Viðurlögin voru 360 þúsund króna sekt, svipting ökuréttar í 36 mánuði, tveir refsipunktar og greiðsla sakarkostnaðar að fjárhæð 56.314 krónur.
Taldi refsinguna of þunga
Ökumaðurinn leitaði til ríkissaksóknara og óskaði eftir því að sektargerðin yrði felld úr gildi. Hann hélt því meðal annars fram að áfengismagn hefði verið rétt yfir refsimörkum og að töluverður tími hefði liðið frá áfengisneyslu þar til aksturinn fór fram.
Þá taldi hann sviptingu ökuréttar óhóflega með hliðsjón af aldri sínum, búsetu og persónulegum aðstæðum en ekki er farið nánar í þá sauma í bréfi umboðmanns. Hann mótmælti jafnframt greiðslu sakarkostnaðar og taldi lagaheimildir ófullnægjandi.
Ríkissaksóknari hafnaði beiðninni og benti meðal annars á að ökumaðurinn hefði áður gerst sekur um ölvunarakstur. Um ítrekað brot væri því að ræða.
Umboðsmaður Alþingis taldi ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvörðun ríkissaksóknara. Viðurlögin hefðu verið ákvörðuð samkvæmt gildandi reglum og heimilt væri að innheimta sakarkostnað.
Málinu lauk með bréfi umboðsmanns sem birt var á vef hans í byrjun nóvember.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir