Mercedes-Benz S-Class-bílar af árgerð 2021 og nýrri hafa verið innkallaðir vegna hættu á leka í bremsuslöngum. Lekinn getur skert bremsugetu bílanna og aukið hættu á slysum.

Askja hefur sent Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) tilkynningu um innköllunina.
Samkvæmt tilkynningunni er hætta á að bremsuslöngur að framan leki, sem getur haft áhrif á virkni hemlakerfisins.
Askja mun skipta um bremsuslöngurnar í þeim bílum sem innköllunin nær til.
Eigendur Mercedes-Benz S-Class geta kannað hvort bíll þeirra sé meðal þeirra sem innköllunin tekur til í innköllunargátt Öskju og í kjölfarið bókað tíma á verkstæði fyrirtækisins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir