Þýsk kona þarf að greiða gististaðnum Arctic Wind í Vogum 834 þúsund krónur í málskostnað eftir að hafa tapað máli gegn fyrirtækinu. Hún krafðist endurgreiðslu vegna bókaðrar gistingar sem hún gat ekki nýtt sér þegar heitavatn fór af í Vogum í kjölfar eldgoss í febrúar 2024. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Konan hafði bókað tvö herbergi á gististaðnum dagana 8.–13. febrúar 2024 fyrir 1.092 evrur, sem jafngilda um 150 þúsund krónum.
Að morgni 8. febrúar hófst eldgos á Reykjanesskaga og hraun rann yfir Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Vegna heitavatnsleysisins höfðu rekendur Arctic Wind samband við konuna og ráðlögðu henni að afbóka gistinguna. Hún mætti samt á gististaðinn sama dag en fékk ekki að gista.
Héraðsdómur Reykjaness taldi heitavatnsleysið vera óviðráðanlegt atvik, svokallað force majeure, sem gæti leyst fyrirtækið undan ábyrgð vegna þess að ekki var hægt að efna samninginn.
Þá hafði konan bókað gistinguna í gegnum ferðabókunarsíðuna Expedia en ekki beint hjá Arctic Wind. Dómurinn taldi hana ekki geta borið fyrir sig að samningsskilmálar Expedia væru ósanngjarnir gagnvart gististaðnum.
Arctic Wind var því sýknað af kröfum konunnar, en hún þarf að greiða fyrirtækinu 834 þúsund krónur í málskostnað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir