Gamanleikkonan Lucy Beaumont, 43 ára, staðfestir að hún hafi verið ein þeirra sem létu The Guardian vita af ásökunum um háttsemi grínistans David Walliams. Hún segir ungar konur hafa verið berskjaldaðar í samskiptum við hann og að ein þeirra hafi jafnvel verið bundin trúnaðarsamningi sem bannaði henni að ræða málið við fjölskyldu og vini.
Beaumont greindi frá þessu í viðtali við Sky News í kjölfar þess að Walliams tapaði máli fyrir hæstarétti þar sem hann reyndi að koma í veg fyrir að fjölmiðlarnir The Guardian og Independent Television News birtu ásakanir á hendur honum.
Fyrir dómi kom fram að fjölmiðlarnir hygðust birta ásakanir um að Walliams hefði nýtt sér frægð sína og stöðu til að ná sambandi við ungar konur og átt við þær óviðeigandi kynferðisleg samskipti sem fælu í sér misnotkun.
Beaumont sagði fyrst hafa heyrt af málinu fyrir þremur árum þegar ungur starfsmaður í sjónvarpsbransanum leitaði til hennar. Starfsmaðurinn hafði meðal annars verið látinn fylgja ungum stúlkum, sem sagðar voru eldri en 16 ára, í búningsherbergi Walliams.
„Það sem vakti sérstakar áhyggjur hjá mér var að þetta voru stúlkur úr verkalýðsstétt og sumar þeirra höfðu aldrei komið til Lundúna áður. Þær höfðu enga reynslu af sjónvarpsbransanum og starfsmaðurinn taldi þær berskjaldaðar,“ sagði Beaumont.
Bætti hún við: „Ég vann áður í skólum og hef fengið þjálfun í að vernda börn og ungmenni. Ég gerði allt sem ég gat í kyrrþey og þegar ég hef heyrt orðróm um einhvern hef ég alltaf reynt að gera allt sem í mínu valdi stendur. En það er bara svo margt sem maður getur gert. Ég er ekki lögreglan. Ekkert af þessu virðist vera ólöglegt.“
Hún ákvað að hafa samband við The Guardian þar sem hún taldi ekki vera neina viðeigandi leið til að tilkynna slík mál innan sjónvarpsbransans.
Beaumont tók fram að hún hefði sjálf aldrei orðið vitni að óviðeigandi hegðun Walliams en reynt að ná sambandi við eina stúlkuna sem sögð var hafa verið leidd í búningsherbergi hans. Hún segir stúlkuna hafa verið í mjög slæmu andlegu ástandi og óttast að hún myndi svipta sig lífi.
„Ég hafði miklar áhyggjur af henni. Satt að segja óttaðist ég að hún myndi taka eigið líf vegna þessa. Hún hafði birt ýmislegt á netinu og gögn bentu til þess að hún hefði verið í búningsherbergi. Ég bauðst til að greiða lögfræðikostnað til að reyna að tryggja henni vernd,“ sagði Beaumont.
Hún telur að stúlkan hafi undirritað trúnaðarsamning sem bannaði henni ekki aðeins að ræða málið við fjölmiðla heldur einnig við fjölskyldu sína, vini og meðferðaraðila.
„Ég er næstum farin að gráta þegar ég segi þetta,“ sagði Beaumont í viðtalinu.
Hún óttast nú að hafa skaðað eigin starfsframa með því að stíga fram.
„Ég held satt að segja að ég muni ekki vinna aftur í sjónvarpi. Ástæðan fyrir því að þekktir einstaklingar tjá sig ekki er sú að þeir missa verkefni og eiga á hættu að vera stimplaðir sem vandræðagemlingar,“ sagði hún.
Walliams hafnar ásökununum
David Walliams hafnar ásökununum og segist miður sín vegna þeirra. Í bréfi til blaðamanna rannsóknarinnar viðurkenndi hann þó að hafa stundum sýnt konum sem hann átti lausleg kynferðisleg sambönd við ónóga tillitssemi.
„Ég geri mér grein fyrir því að ég tók ekki alltaf tilfinningar annarra nægilega mikið með í reikninginn. Það sé ég eftir,“ skrifaði hann.
Hann hafnaði því hins vegar að hafa misnotað frægð sína eða stöðu.
„Ég er ekki kynferðislegt rándýr. Ég hef ekki brotið lög, en mér þykir afar leitt að sumar þeirra kvenna sem ég kynntist fyrir tíu til tuttugu árum hafi nú lýst yfir sársauka eða reiði í minn garð,“ sagði Walliams.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir