Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

„Og nú er hann floginn á braut í morgunbirtunni, dáinn, horfinn, harmafregn“

Vinir minn­ast Marðar Árna­sonar með hlýju

Minningarorð
Minn­ing­ar­orð Vinir og sam­starfs­fólk minn­ast Marðar með hlýju eftir að fregnir bár­ust af and­láti hans.

Fjöl­margir hafa minnst Marðar Árna­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, blaða­manns og fræði­manns, eftir að fregnir bár­ust af and­láti hans í morgun. Þeir sem þekktu hann minn­ast meðal ann­ars hlýrrar mann­eskju, góðs vinar, vand­aðs fræði­manns og ein­lægs bar­áttu­manns fyrir íslensku máli, jafn­rétti og mann­rétt­indum.

Björn Þor­láks­son fjöl­miðla­maður minn­ist kynna sinna af Merði og rifjar meðal ann­ars upp þegar þeir tók­ust á í beinni sjón­varps­út­send­ingu á meðan Björn var í fram­boði.

„Við erum 88 pró­sent sam­mála sem ein­stak­lingar, gangi þér vel!“ segir Björn að hafi verið kveðjan sem Mörður sendi honum eftir kapp­ræð­urnar.

Björn segir að þrátt fyrir að þeir hefðu tek­ist á í eld­lín­unni hafi síðar komið í ljós hversu hlýr maður Mörður var.

„Stoltur get ég líka sagt að Mörður sem um ára­tuga skeið var burð­ar­biti í sam­fé­lag­inu, sagði senni­lega opin­ber­lega síð­ustu orðin um sam­fé­lagið í þáttum hjá mér,“ skrifar Björn og lýsir honum sem ein­stöku val­menni sem hafi einnig reynst börnum hans og eig­in­konu vel.

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, minn­ist Marðar sem góðs félaga, ráð­gjafa og eld­heits bar­áttu­manns fyrir jafn­rétti og mann­rétt­indum.

Hún segir Mörð hafa átt stóran þátt í því að hún ákvað að taka sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir þing­kosn­ing­arnar haustið 2017.

„Við tengd­umst í eld­móði fyrir betra sam­fé­lagi og hann var óhræddur við að gagn­rýna eigið fólk ef honum þótti það vera að fara út af spor­inu,“ skrifar Helga Vala.

Hún segir Mörð hafa verið mik­inn unn­anda íslensk­unnar og bendir sér­stak­lega á bar­áttu hans fyrir jafn­rétti kyn­slóð­anna, meðal ann­ars með áherslu á nátt­úru­vernd og umhverf­is­mál.

Lærði mikið af Merði í ritstjórn

Páll Valsson, útgáfu­stjóri Bjarts og Veraldar, minn­ist einnig sam­starfs síns við Mörð og segir hann hafa verið einn besta rit­stjóra sem hann hafi kynnst.

„Hart er að sjá á eftir jafn öfl­ugum manni og Merði Árnasyni svo langt um aldur fram. Við Mörður unnum saman í mörg ár og af fáum hef ég lært meira í rit­stjórn,“ skrifar Páll.

Hann segir Mörð hafa verið frá­bæran rit­stjóra, snjallan mál­fræð­ing og kenn­ara sem hafi verið lagið að fræða fólk um ýmsar laun­helgar mál­fræð­innar.

Páll segir Mörð jafn­framt hafa verið ein­stak­lega skemmti­legan þegar sá gáll­inn var á honum.

Hann nefnir sér­stak­lega útgáfu Marðar á Pass­íu­sálm­unum sem mikið afrek sem muni standa lengi.

Að lokum sendir Páll Lindu og öðrum ást­vinum Marðar inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

„Það munaði um þig“

Margrét Tryggva­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona, minn­ist aukreitis Marðar sem vinar og sam­herja sem hún kynnt­ist fyrst sum­arið 2000 þegar þau störf­uðu saman hjá Máli og menn­ingu.

Hún rifjar upp að fyrstu orð hans til hennar hafi verið: „Getur þú nú ekki verið ann­ars staðar?“

Margrét hafði þá verið ráðin sum­ar­starfs­maður á rit­stjórn for­lags­ins en ekki fengið fasta starfs­stöð. Mörður hafði verið í sum­ar­fríi og henni því komið fyrir á skrif­stofu þar sem orða­bóka­rit­stjór­arnir störf­uðu alla jafna.

„Nei,“ svar­aði hún, „ég á að vera hér núna.“

Hún segir þau hafa verið vini og jafn­ingja upp frá því. Þau störf­uðu saman hjá Máli og menn­ingu og síðar Eddu útgáfu, en leiðir þeirra lágu einnig saman á Alþingi. Þar hafi þau verið sam­herjar þrátt fyrir að til­heyra sitt­hvorum flokknum, Mörður í rík­is­stjórn en Margrét í stjórn­ar­and­stöðu.

Hún segir þau hafa deilt áherslu á rétt­læti og nátt­úru­vernd og verið treg til að sam­þykkja mála­miðl­anir sem gerðu rétt­læt­is­mál gagns­laus.

Eftir að þing­ferli Mar­grétar lauk hvatti Mörður hana áfram til starfa á vett­vangi stjórn­mál­anna og benti henni meðal ann­ars á tæki­færi innan síns eigin flokks. Þegar hún gekk síðar til liðs við Sam­fylk­ing­una hafi eng­inn tekið jafn opnum örmum á móti henni og Mörður.

Þau störf­uðu einnig saman í stjórn RÚV, þar sem Margrét var vara­maður Marðar. Hún segir hann hafa verið fyr­ir­myndar stjórn­ar­mann sem hafi reglu­lega upp­lýst hana um störf stjórn­ar­innar, leitað álits hennar og fengið hana til að taka þátt í stefnu­mót­un­ar­vinnu áður en hún tók við sem aðal­maður.

„Takk fyrir allt elsku Mörður, það mun­aði um þig,“ skrifar Margrét að lokum og sendir Lindu og öðrum ást­vinum hans sam­úð­ar­kveðjur.

„Ástríða hans fyrir móðurmálinu duldist engum“

Þá minn­ist Elísabet Jök­uls­dóttir skáld og rit­höf­undur Marðar bæði sem vand­aðs fræði­manns og náins vinar. Hún segir hann hafa verið frum­kvöðul og braut­ryðj­anda í umfjöllun um íslenskt mál og hafa sýnt fólki tungu­málið í nýju ljósi.

„Ástríða hans fyrir móð­ur­mál­inu duld­ist engum,“ skrifar Elísabet og bætir við að hann hafi verið skemmti­legur, húmor­ískur og kær­leiks­ríkur maður.

Hún segir Mörð hafa sýnt lífi hennar og starfi mik­inn áhuga og meðal ann­ars fylgst vel með syni hennar þegar hann lék með KR, enda hafi Mörður sjálfur verið mik­ill stuðn­ings­maður félags­ins.

Elísabet leit­aði einnig oft til Marðar eftir ráð­gjöf um íslenskt mál. Hann hjálp­aði henni meðal ann­ars að læra Einræður Stark­aðar utan að, en hún flutti þær síðar á ljóða­slammi og hlaut góða ein­kunn.

Mörður rit­stýrði einnig tveimur bókum hennar, Fót­bolta­sögum og Laufey, sem komu út hjá Máli og menn­ingu. Elísabet segir hann hafa haft sér­stakt dálæti á einni fót­bolta­sögu þar sem úrslita­leikur fór fram í hellidembu og lauk með 2–1 sigri.

Hún minn­ist jafn­framt náins sam­bands Marðar og eig­in­konu hans, Lindu, og segir þau hafa verið hvort öðru mik­il­vægur stuðn­ingur í líf­inu.

„Þau voru klett­ur­inn í lífi hvors ann­ars,“ skrifar Elísabet og rifjar meðal ann­ars upp brúð­kaup þeirra í sveita­kirkju á Mýrunum og ferða­lag þeirra saman til Palest­ínu.

Elísabet kynnt­ist Merði fyrst þegar hún starf­aði á Þjóð­vilj­anum árið 1988, þar sem hann var rit­stjóri. Hún rifjar upp orð bróður síns um að Mörður væri „mann­legi rit­stjór­inn“.

Í lok færslu sinnar kveður hún vin sinn með áhrifa­miklum orðum:

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn, í síð­asta sinn kall­aði hann á Lindu sína og svo var hann allur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heitavatnsleysið í kjölfar eldgossins í febrúar 2024 var að mati dómsins óviðráðanlegt atvik sem gat leyst gististaðinn undan ábyrgð.
Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Minning

Minning

Mörður Árnason er fall­inn frá

Mörður Árnason starfaði við blaðamennsku, útgáfu og íslensk fræði auk þess að sitja á Alþingi.
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Minning

Arin­björn Jóhanns­son er fall­inn frá

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn