Danski hagfræðingurinn Lars Christensen segir íslensku krónuna hafa reynst Íslendingum illa og bendir á að verðbólga hér á landi hafi verið margfalt meiri en í Danmörku síðustu hundrað ár. Hann telur að stjórnmálamenn og Seðlabanki Íslands hafi í áratugi stuðlað að verðbólgu með stefnu sem hafi grafið undan verðgildi gjaldmiðilsins.
Christensen fjallar um málið í færslu á Facebook þar sem hann rifjar upp sögu íslenska seðlabankakerfisins. Hann bendir á að árið 2027 verði öld liðin frá því að Landsbanki Íslands tók við hlutverki seðlabanka landsins.
„Ísland hefur brátt haft sinn eigin seðlabanka í 100 ár, því miður hefur það ekki verið árangurssaga,“ skrifar Christensen.
Hann bendir á að Íslendingar þurfi nú um 18 íslenskar krónur til að kaupa eina danska krónu. Það hafi þó ekki alltaf verið þannig.
Fyrstu íslensku peningaseðlarnir komu út árið 1886 og voru prentaðir í Danmörku. Á þeim var mynd Kristjáns níunda Danakonungs. Danskur konungur var á íslenskum seðlum allt til ársins 1931.
Frá árinu 1904 gegndi hinn einkarekni Íslandsbanki í raun hlutverki seðlabanka og var krónan þá gulltryggð. Fram til ársins 1920 fylgdi íslenska krónan þeirri dönsku nokkurn veginn í hlutfallinu einn á móti einum.
Árið 1927 tók ríkisbankinn Landsbanki Íslands við hlutverki seðlabanka.
Verðlag hækkað 29.400-falt
Christensen segir verðbólgu á Íslandi hafa verið að meðaltali 11 prósent á ári frá 1926 til 2025, samanborið við 3,7 prósent í Danmörku.
Á þessu tímabili hafi verðlag á Íslandi hækkað 29.400-falt en aðeins 38-falt í Danmörku.
Hann segir ástandið hafa verið sérstaklega slæmt á áttunda áratugnum. Vextir hafi verið ákveðnir af stjórnmálamönnum og ríkissjóður fjármagnað fjárlagahalla með yfirdrætti hjá Seðlabankanum.
Þegar laun hækkuðu hafi krónan verið felld til að tryggja samkeppnisstöðu útflutningsgreina. Raunvextir hafi um langt skeið verið neikvæðir um 10 til 20 prósent.
Afleiðingin hafi verið mikil aukning peningamagns í umferð. Frá 1970 til 1990 hafi breitt peningamagn, svokallað M3, aukist að meðaltali um 39 prósent á ári, á sama tíma og verðbólga var 33 prósent.
Á verstu árunum, frá 1978 til 1983, hafi peningamagnið aukist um 65 prósent á ári. Árið 1983, þegar verðbólgan náði hámarki í 84 prósentum, hafi peningamagnið aukist um 79 prósent.
Segir stjórnmálamenn hafa grafið undan krónunni
Christensen vísar í kenningar bandaríska hagfræðingsins Roberts Hetzel, sem starfaði hjá bandaríska seðlabankanum í Richmond í meira en fjóra áratugi.
Hetzel leggur áherslu á að reglur og vinnubrögð seðlabanka ráði miklu um þróun verðbólgu. Ef seðlabanki stendur fast gegn verðbólguáhrifum tímabundinna áfalla, svo sem launahækkana eða hækkandi fiskverðs, ættu þau aðeins að hafa áhrif á verðlagið í eitt skipti. Ef bankinn bregst hins vegar við með því að auka peningamagn í umferð geti tímabundið verðbólguáfall þróast í viðvarandi verðbólgu.
Christensen segir Ísland hafa valið síðarnefndu leiðina í áratugi með því að bregðast við launakröfum, fjárlagahalla og sveiflum í sjávarútvegi með auknu peningamagni.
Hann telur að þessi vinnubrögð hafi ekki horfið að fullu og varar við því að fleiri seðlabankar geti lent í svipuðum aðstæðum vegna pólitísks þrýstings.
Miklir fjárlagahallar og kröfur stjórnmálamanna um að hafa áhrif á vexti geti grafið undan sjálfstæði seðlabanka. Láti seðlabankarnir undan þrýstingnum og auki peningamagn til að mæta útgjöldum ríkisins geti aðhald gegn verðbólgu veikst.
Danska krónan kostaði áður 1,22 íslenskar krónur
Christensen bendir að lokum á hversu mikið íslenska krónan hefur veikst gagnvart þeirri dönsku.
Þegar Landsbanki Íslands tók við hlutverki seðlabanka árið 1927 kostaði ein dönsk króna 1,22 íslenskar krónur. Í dag samsvari það um 1.800 gömlum íslenskum krónum, en tveimur núverandi krónum var skipt út fyrir hverjar 100 gamlar árið 1981.
Að mati Christensens sýni þróunin hversu illa íslenska peningakerfið hafi staðið sig í að viðhalda verðgildi gjaldmiðilsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.


























Athugasemdir