Glúmur Baldvinsson alþjóðastjórnmálafræðingur, segist ætla að höfða mál gegn skósmið í Kringlunni eftir að hann féll illa um eigin skóreimar og braut tvö rifbein. Hann segir skósmiðinn hafa vísvitandi selt sér reimar sem voru of langar.
Í gamansamri færslu á Facebook rekur Glúmur atburðarásina sem hófst fyrir viku þegar reimar slitnuðu á skóm hans. Hann fór með þá til skósmiðs á annarri hæð Kringlunnar, bað um nýjar reimar og lét jafnframt fínpússa skóna.
Að sögn Glúms var honum vel tekið og honum sagt að verkið tæki fimm mínútur. Hálftíma síðar voru skórnir tilbúnir. Daginn eftir tók hann þó eftir því að nýju reimarnar væru full langar og þvældust fyrir honum.
Viku síðar fór Glúmur með dóttur sinni í sumarbústað og brugðu þau sér í heitan pott. Þegar hann steig upp úr ákvað hann að fara í skóna án þess að reima þá, enda aðeins þrjú þrep inn í húsið.
„Reimarnar drógust á eftir mér. Ég geng inn og skelli dyrum og ætla að taka næstu skref nema að þá voru reimarnar læstar í hurðinni svo ég dúndraðist í gólfið og braut tvö rifbein,“ skrifar Glúmur.
Hann segir afleiðingarnar þær að hann geti hvorki hlegið né hóstað næstu vikurnar.
„Ég geng inn og skelli dyrum og ætla að taka næstu skref nema að þá voru reimarnar læstar í hurðinni svo ég dúndraðist í gólfið og braut tvö rifbein og get nú hvorkið hlegið né hóstað næstu vikurnar.“
Glúmur sér þó ákveðna ljósglætu í málinu og telur sig eiga kröfu á hendur skósmiðnum.
„Góðu fréttirnar eru þó þær að ég á mál á hendur skósmiðnum í Kringlunni sem vísvitandi seldi mér of langar reimar,“ skrifar hann.
Hann segir lögmann sinn nú hafa málið í sínum höndum og kveðst ætla að krefjast bóta. „Þetta verða löng málaferli,“ segir Glúmur að lokum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir