Helga Margrét Höskuldsdóttir, íþróttafréttamaður RÚV, hefur vakið athygli í Bandaríkjunum þar sem hún tekur þátt í alþjóðlegu verkefni á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins. Verkefnið miðar að því að efla stöðu kvenna og stúlkna í íþróttum.
Bandaríska íshokkídeildin NHL fjallar ítarlega um Helgu Margréti á vef sínum og segir frá uppvexti hennar á sveitabæ nærri Selfossi, þar sem hún ólst upp ásamt fjórum yngri systkinum. Þar hafi hún lært mikilvægi vinnusemi, sjálfstæðis og þrautseigju.
Helga Margrét, sem er 29 ára, flutti sextán ára til Reykjavíkur og stundaði síðar nám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hún lauk einnig meistaranámi í fjölmiðla- og samskiptafræði við London School of Economics.
Hún var valin til þátttöku í verkefninu hjá NHL og dvaldi í þrjár vikur í New York þar sem hún kynntist starfsemi deildarinnar. Hún heimsótti meðal annars sjónvarpsver NHL og Madison Square Garden.
Markmið Helgu Margrétar er að auka sýnileika kvennaíþrótta á Íslandi með öflugri umfjöllun og persónulegum frásögnum af íþróttakonum.
Hún segir kvennaíþróttir enn fá minni athygli en karlaíþróttir þrátt fyrir góðan árangur íslenskra íþróttakvenna.
„Það sem við þurfum að gera meira af er að segja sögur kvennanna. Það verður að vera næsta skref,“ segir Helga Margrét í samtali við NHL.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir