Ungur maður hefur verið dæmdur í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir og fíkniefnalagabrot. Maðurinn var undir 18 ára aldri þegar hann framdi brotin. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur 3. nóvember síðastliðinn.
Fyrri líkamsárásin átti sér stað aðfaranótt 10. september 2024 við Réttarholtsskóla í Reykjavík. Þar réðst maðurinn á annan mann og stakk hann með hnífi í vinstri síðu og mjöðm. Brotaþolinn hlaut tvo skurði auk yfirborðsáverka á úlnlið og hendi.
Við handtöku fundust jafnframt 70 MDMA töflur í fórum árásarmannsins.
Síðari árásin átti sér stað 6. ágúst 2025 við Álfabakka 16 í Reykjavík. Þar réðst maðurinn á annan einstakling og sló hann tvívegis í höfuðið með járnröri. Brotaþolinn hlaut tvo opna skurði í hársverði, auk áverka á hné.
Maðurinn játaði brotin skýlaust fyrir dómi.
Við ákvörðun refsingar var sérstaklega horft til ungs aldurs hans og játningar. Þá kom fram að hann hefði verið í langtímameðferð á vegum Barna- og fjölskyldustofu frá ágúst 2025 til janúar 2026 og að meðferðin hefði gengið vel.
Dómurinn taldi hæfilega refsingu 15 mánaða fangelsi en ákvað að skilorðsbinda hana til þriggja ára.
Manninum var jafnframt gert að greiða brotaþolunum samtals 1.049.500 krónur í bætur, auk vaxta, og samtals 1,4 milljónir króna í málskostnað þeirra.
Þá var honum gert að greiða rúmlega 1,7 milljónir króna í sakarkostnað
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir