Tveir frændur, Stefán Hrafnkell Gunnlaugsson og Þórhallur Agnarsson, hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á mann fyrir utan skemmtistað á Austurlandi árið 2024. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands 3. nóvember síðastliðinn.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt dags í september 2024 þegar átök brutust út á bílastæði við skemmtistað. Samkvæmt ákæru sparkaði Stefán Hrafnkell í höfuð brotaþola með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund. Þórhallur sparkaði síðan ítrekað í líkama mannsins þar sem hann lá bjargarlaus á jörðinni.
Brotaþoli hlaut heilahristing, áverka á vör og tannskemmdir. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöð þar sem honum var veitt aðhlynning.
Báðir ákærðu neituðu sök. Stefán Hrafnkell sagðist hafa reynt að skilja mennina að en Þórhallur kvaðst lítið muna eftir atvikinu vegna mikillar ölvunar.
Við rannsókn málsins var meðal annars stuðst við upptökur úr eftirlitsmyndavél, farsímum og búkmyndavél lögreglu, auk framburðar fjölmargra vitna.
Dómurinn taldi sannað að Stefán Hrafnkell hefði sparkað í höfuð brotaþola og að Þórhallur hefði sparkað í hann eftir að hann missti meðvitund.
Stefán Hrafnkell hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en Þórhallur var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Refsing beggja fellur niður að tveimur árum liðnum haldi þeir almennt skilorð.
Stefáni Hrafnkatli var gert að greiða brotaþola 748.755 krónur í bætur, þar af ber Þórhalli að greiða 300.000 krónur óskipt með honum.
Frændurnir voru jafnframt dæmdir til að greiða brotaþola rúmlega 798 þúsund krónur í málskostnað, auk þess að bera sakarkostnað vegna málsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir