Bandaríska klámstjarnan Leana Lovings segir dáleiðslu hafa hjálpað sér að vinna bug á trúarlegri sektarkennd sem tengdist sjálfsfróun og kynlífi. Hún ólst upp á íhaldssömu kristnu heimili og segist lengi hafa óttast að syndga með því að njóta kynferðislegrar ánægju.
Lovings greindi frá þessu í hlaðvarpsþættinum Holly Randall Unfiltered sem birtist 21. október síðastliðinn.
Hún ólst upp á bóndabæ í suðausturhluta Bandaríkjanna þar sem trúarleg gildi voru höfð í hávegum. Við rúmið hennar hékk postulínskross sem minnti hana stöðugt á trúaruppeldið.
„Ég var hrædd við að stunda sjálfsfróun. Ég hafði aldrei fengið fullnægingu ein með sjálfri mér,“ sagði Lovings í viðtalinu.
Hún lýsti því hvernig sektarkenndin hefði komið í veg fyrir að hún gæti notið eigin líkama. Til að vinna á þessum tilfinningum fór hún að kynna sér erótíska dáleiðslu.
Lovings hóf jafnframt störf við klámstreymi á netinu árið 2017 og eignaðist þar yfir 200 þúsund fylgjendur en áður hafði hún stundað háskólanám í líffræði og sálfræði.
Lovings segir að dáleiðslan hafi ekki svipt hana sjálfsstjórn heldur hjálpað henni að losna undan hömlum. Hún leggur áherslu á að einstaklingar haldi ávallt stjórn á eigin ákvörðunum.
Hún greindi einnig frá skynúrvinnsluröskun sem geri hana sérstaklega næma fyrir léttri snertingu. Að eigin sögn geti hún jafnvel fengið fullnægingu við snertingu á öðrum líkamshlutum en kynfærum.
Lovings segir störf sín í klámiðnaðinum hafa verið hluta af persónulegu bataferli. Hún hafi þó ekki hafið tekið þátt í hefðbundu klámi fyrr en hún treysti sér til að setja skýr mörk.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir