HPV-bólusetningar hafa skilað miklum árangri í baráttunni gegn leghálskrabbameini í Englandi. Engin kona á aldrinum 20–24 ára lést af völdum sjúkdómsins á árunum 2020 til 2024 samkvæmt nýrri rannsókn. Talið er að bólusetningarnar hafi þegar komið í veg fyrir um 200 dauðsföll.
Rannsóknin var unnin af vísindamönnum við Queen Mary-háskólann í Lundúnum og birt í vísindaritinu The Lancet en sagt er frá henni í netmiðlum. Hún sýnir áhrif bólusetningaráætlunar sem hófst í Englandi árið 2008.
Konurnar í aldurshópnum tilheyra fyrstu kynslóðinni sem fékk HPV-bólusetningu í skólum. Vísindamenn áætla að um 23 konur hefðu látist úr leghálskrabbameini á tímabilinu ef bólusetningarnar hefðu ekki komið til.
HPV er algeng veira sem smitast við nána snertingu húðar. Ákveðnar gerðir hennar geta valdið frumubreytingum sem síðar þróast í krabbamein. Veiran er talin orsök nær allra tilfella leghálskrabbameins.
Nýrri HPV-bóluefni veita vörn gegn níu gerðum veirunnar og geta komið í veg fyrir allt að 90 prósent tilfella sjúkdómsins. Besti árangurinn næst þegar börn eru bólusett áður en þau verða útsett fyrir veirunni.
Þrátt fyrir árangurinn leggja sérfræðingar áherslu á að konur haldi áfram að mæta í leghálsskimun, enda veiti bóluefnið ekki vörn gegn öllum gerðum HPV-veirunnar.
Áhyggjur eru jafnframt af minnkandi þátttöku í bólusetningum eftir Covid-faraldurinn. Skólalokanir, rangar upplýsingar um öryggi bóluefnanna og skortur á samþykki foreldra hafa meðal annars haft áhrif.
Breska heilbrigðiskerfið stefnir að því að útrýma leghálskrabbameini sem lýðheilsuvanda fyrir árið 2040. Niðurstöðurnar eru taldar sýna hversu mikil áhrif markvissar bólusetningar geta haft á heilsu heillar kynslóðar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir