Hin sextán ára Chloe Watson Dransfield var stungin fimm sinnum til bana í fyrirfram ákveðnum slagsmálum í Leeds á Englandi. Átökin áttu sér stað vegna drengs sem hafði verið í sambandi við bæði hana og árásarkonuna.
Réttarhöld yfir Kaylu Smith, átján ára, og tveimur öðrum ungmennum eru hafin í Leeds Crown Court. Smith hefur játað manndráp af gáleysi en neitar morði. Blake Dowling, átján ára, og Archie Rycroft, tvítugur, neita sök um bæði morð og manndráp af gáleysi.
Chloe lést af stungusárum á hálsi og baki eftir árásina snemma morguns 28. mars.
Fyrir dómi kom fram að Smith hefði hótað Chloe ítrekað í síma eftir að hún komst að því að hún væri með Dowling. Hún hefði meðal annars öskrað: „Ég ætla að stinga þig í hálsinn.“
Stúlkurnar sömdu um að hittast og berjast. Dowling bókaði leigubíl og fór með Chloe heim til Smith um nóttina.
Smith kom út úr sumarhúsi í garði afa síns vopnuð hnífi og stakk Chloe fimm sinnum. Rycroft fylgdi henni og er sakaður um að hafa tekið árásina upp á síma. Myndbandinu var síðar eytt og hefur ekki fundist.
Á upptöku úr dyrabjöllumyndavél heyrist Smith hrópa til Chloe: „Komdu þá, ég ætla að stinga þig.“
Um mínútu eftir árásina heyrðist afi Smith segja að hann ætlaði að hringja í lögregluna. Smith svaraði: „Þú mátt ekki hringja í lögregluna, hún er dáin.“
Afi hennar kallaði ekki eftir sjúkrabíl fyrr en 37 mínútum eftir árásina en nágranni hans sá hann reyna að endurlífga Chloe á gangstéttinni. Chloe var að lokum flutt á sjúkrahús en úrskurðuð látin klukkan 6.40.
Þegar lögregla handtók Smith og Rycroft voru þau að sögn saksóknara að hlæja og gantast með vinum sínum og nota hláturgas í viðurvist lögreglumannanna.
Að sögn saksóknara skipulagði Dowling átökin með því að fara með Chloe á vettvang svo hún gæti barist við Smith. Rycroft er sakaður um að hafa ýtt undir ofbeldið með því að fylgja Smith og reyna að taka árásina upp. Dowling sagðist ekki hafa vitað að Chloe yrði fyrir alvarlegu líkamstjóni. Rycroft sagðist hafa fylgt Smith af forvitni og ekki séð að hún væri með hníf.
Smith viðurkennir að hafa veitt Chloe banvæna sárið en segist hvorki hafa ætlað að drepa hana né valda henni mjög alvarlegum áverkum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir