Hundruðum skóla í Skotlandi og á Norður-Írlandi bárust sprengjuhótanir sem lögreglan telur tilhæfulausar. Hótanirnar leiddu til þess að fjöldi skóla rýmdi húsnæði sitt og nemendur og starfsfólk þurftu að yfirgefa skólana.
Lögreglan í Skotlandi segir að hótanirnar hafi borist með tölvupósti til fjölda skóla. Ekkert bendi þó til þess að þær séu trúverðugar eða að almenningi stafi hætta af þeim. Talið er að skilaboðin hafi verið send frá aðila utan Bretlands.
Á Norður-Írlandi höfðu yfir 300 skólar tilkynnt lögreglu um tölvupóst sem vakti áhyggjur. Lögreglan þar hefur hafið umfangsmikla rannsókn og vinnur með þeim skólum sem fengu hótanirnar.
Anthony McNally, aðstoðarlögreglustjóri á Norður-Írlandi, segir lögreglu taka mál af þessu tagi mjög alvarlega og skilji þær áhyggjur sem þær valdi meðal nemenda, foreldra og starfsfólks skóla.
Lögreglan í Skotlandi segir hins vegar að ekki sé ástæða til að rýma skóla eða halda börnum heima eingöngu vegna innihalds tölvupóstanna. Sérstök netglæpa- og svikadeild rannsaki uppruna skilaboðanna í samstarfi við lögregluyfirvöld í Bretlandi og víðar.
Svipaðar sprengjuhótanir bárust skólum í Skotlandi og á Norður-Írlandi í síðasta mánuði. Þá sagði menntamálaráðherra Norður-Írlands, Paul Givan, að hótunin hefði verið íslömsk að uppruna og verið undirrituð með orðunum „Allahu Akbar“.
Yfirvöld segja núverandi skilaboð minna á hótunina frá því í síðasta mánuði, sem síðar reyndist gabb.
Svipaðar hótanir hafa einnig borist að minnsta kosti 300 skólum á Ítalíu í dag og voru þeir rýmdir. Ekki er vitað hvort málin tengjast, en undanfarnar vikur hafa sprengjuhótanir borist víða í Evrópu, meðal annars gegn stórmörkuðum, flugumferðarstjórn, fjölmiðlum og blóðbönkum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir