
Einn farþegi var handtekinn á Tenerife South-flugvellinum eftir að maríjúana og matvæli með kannabis fundust í farangri hans. Annar farþegi úr sömu flugvél er einnig til rannsóknar vegna gruns um aðild að málinu en þetta kemur fram í í tilkynningu frá spænskum tollyfirvöldum.
Samkvæmt tilkynningunni frá því í gær stóðu starfsmenn tolleftirlits Spánar að aðgerðinni og nutu þeir aðstoðar lögreglu í málinu.
Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins vegna taugaveiklunar og ósamræmis í svörum þegar rætt var við hann. Í kjölfarið ákváðu lögreglumenn að kanna farangur hans.
Við leitina fundust fimm lofttæmdar pakkningar með maríjúanablómum ásamt fjölda lítilla poka með gúmmínammi og öðrum matvælum sem innihéldu kannabis. Samkvæmt yfirvöldum voru vörurnar tilbúnar til sölu.
Farþeginn var handtekinn vegna gruns um fíkniefnasölu og rannsókn hófst á því hvort fleiri tengdust málinu. Við þá rannsókn beindist grunur að öðrum farþega sem hafði komið með sömu vél.
Ekki kemur fram í tilkynningunni hvaðan flugvélin kom eða hversu mikið magn fíkniefna var haldlagt.
