
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði konu af ákæru fyrir líkamsárás á Ölhúsinu við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði sumarið 2024. Dómurinn taldi ekki sannað að konan hefði togað aðra konu í gólfið eða slegið hana í andlitið, eins og ákært var fyrir en dómurinn var birtur í byrjun október.
Atvikið átti sér stað aðfaranótt 29. júní 2024. Samkvæmt ákæru átti konan að hafa veitt brotaþola sár fyrir ofan vinstri augabrún, brunasár á hægri olnboga og rispu framan á hálsi. Ákærða neitaði sök og kvaðst hafa reynt að verja sig.
Brotaþoli var dóttir eiganda staðarins og hafði verið þar að skemmta sér. Hún kvað vin sinn hafa beðið sig að athuga með tvær konur sem væru til vandræða á neðri hæðinni. Í kjölfarið kom til átaka í tröppum milli hæða.
Myndbandsupptaka sýndi konurnar fara saman niður tröppurnar með tak hvor á annarri. Þær féllu síðan í gólfið og virtist brotaþoli lenda ofan á ákærðu. Ekki sást hvað gerðist eftir fallið.
Fyrir dómi sagði brotaþoli ákærðu ekki hafa slegið sig í andlitið. Þá lágu fyrir framburðir um að vinkona ákærðu hefði mögulega sparkað í höfuð brotaþola. Læknir útilokaði ekki að skurður við augabrún hefði orðið vegna glerbrots á gólfinu.
Dómurinn taldi hvorki sannað að ákærða hefði átt upptök ryskinganna né veitt brotaþola þá áverka á höfði sem ákært var fyrir. Var hún því sýknuð.