
Benedikt Freyr Jónsson, plötusnúður og meðlimur íslensku rappsveitarinnar Forgotten Lores, hefur á undanförnum árum staðið fyrir komu fjölmargra erlendra rapplistamanna til Íslands. Hann segir markmiðið ekki aðeins vera að halda tónleika heldur einnig að styrkja íslenska rappsenuna og byggja upp menningu í kringum hana.
Áhugi Benedikts á tónleikahaldi og komu erlendra listamanna til landsins nær langt aftur. Hann segir vegferðina hafa hafist í kringum árið 1999 þegar hann aðstoðaði Robba Kronik við viðburði á vegum Kronik. Árið 2001 flutti hann síðan rappsveitina Lone Catalysts til Íslands.
„Fyrir mér þá er þetta partur af því að hafa senu á Íslandi og búa til kúltur,“ segir Benedikt en hann hefur sjálfur flutt inn listamenn á borð við Mos Def, Talib Kweli og Mobb Deep.
Ástríðan ræður för
Benedikt segist fyrst og fremst velja þá erlendu listamenn sem sjálfur höfða til hans. Hann flytji inn tónlistarfólk sem hann hlustar á og spilar sjálfur enda sé tónlistin drifin áfram af ástríðu.
Hann telur komu erlendra rappara einnig geta haft jákvæð áhrif á íslenska tónlistarsenu. Slíkir viðburðir geti kveikt neista hjá íslenskum listamönnum og skapað þeim tækifæri til að koma fram. Íslenskir rapparar hafa meðal annars fengið að hita upp fyrir erlenda listamenn á viðburðunum.
Benedikt segir jafnframt sérstakt að upplifa gleðina sem myndast meðal tónleikagesta þegar erlendir listamenn stíga á svið hér á landi.
Spennandi ár framundan
Þegar Benedikt er spurður hvaða listamenn hann dreymi um að fá til Íslands vill hann ekki gefa mikið upp að svo stöddu. Hann gefur þó sterklega til kynna að ýmislegt sé í bígerð.
„2027 lítur vel út,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið í viðræðum við nokkra listamenn og unnið að skipulagningu í langan tíma.
Hann hvetur áhugasama til að fylgjast með Live Project á samfélagsmiðlum þar sem frekari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.
Forgotten Lores hefur aldrei hætt
Benedikt er jafnframt meðlimur Forgotten Lores, sem hefur um árabil skipað stóran sess í íslenskri rappsögu en langt er síðan hljómsveitin gaf út lag. Hann segir ýmislegt vera að gerast í kringum hópinn og bendir á að Forgotten Lores hafi í raun aldrei hætt störfum
„Bandið er náttúrulega hópur af vinum en ekki beint hljómsveit, þess vegna hefur FL aldrei hætt, bara unnið í öðrum hlutum,“ segir Benedikt.
Næsti stóri viðburður Benedikts verður á morgun þegar bandaríska rappsveitin Tha Alkaholiks kemur fram í Iðnó. Íslenska rappsveitin Arkir kemur jafnframt saman af þessu tilefni og sér um upphitun.
Benedikt lofar öflugu kvöldi og segir hágæða rapptónleika framundan í Iðnó.
