
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag vegna þess að frumvarp um breytingar á húsaleigulögum hefði ekki verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Hann líkti þeim skilaboðum sem fælust í slíku verklagi við að senda landsmönnum fingurinn.
„Ef það er þannig að það sé sérstakt markmið að senda hagaðilum og í raun landsmönnum öllum skilaboð sem eru líkust því að senda þeim fingurinn þá er þetta ágætisleið að því.“
Í máli Bergþórs kom fram að frumvarpið hefði verið rætt á Alþingi í gær. Hann vísaði til greinargerðar þess þar sem ákvörðunin um að sleppa kynningu í samráðsgátt væri rökstudd með því að hún gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna.
Bergþór benti á að fyrirhugað væri að breytingarnar tækju gildi 1. júlí 2027 og sagði rökin fráleit. Hann óskaði eftir því að forseti Alþingis ræddi málið við ráðherra ríkisstjórnarinnar og lagði áherslu á að samráði væri ætlað að kalla fram sjónarmið og afstöðu hagaðila á fyrri stigum.
Gagnrýndi hann sérstaklega að ráðherra Flokks fólksins stæði að þessu verklagi. Jafnframt hélt hann því fram að ráðherrar flokksins svöruðu ekki fjölmiðlum og mættu ekki í fyrirspurnatíma.
Bergþór sagði ríkisstjórnina með þessu senda þau skilaboð að jafnvel það sem hann kallaði sýndarsamráð væri orðið henni ofviða og að nú ætti að afleggja samráð með öllu.
