
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tólf mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og ólöglega áfengisframleiðslu. Maðurinn var nú sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti í tíunda sinn og undir áhrifum áfengis í sjötta sinn innan ítrekunartíma. Dómurinn féll 2. október.
Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi miðvikudaginn 3. júní síðastliðinn. Hann var þá þegar sviptur ökurétti ævilangt. Í blóðsýni mældist vínandamagn 0,60 prómill.
Sama dag stöðvaði lögregla ólöglega áfengisframleiðslu hans. Hann hafði framleitt 75 lítra af gambra með 18 prósenta áfengisstyrkleika og samtals 20 lítra af landa. Styrkleiki landans var á bilinu 15 til 91 prósent. Þar af voru einn og hálfur lítri með 91 prósents áfengisstyrkleika.
Maðurinn hafði jafnframt átt sérhæfð áhöld til áfengiseimingar án leyfis. Lögregla lagði hald á áfengið og búnaðinn við rannsókn málsins.
Tvær ákærur voru gefnar út vegna brotanna og málin sameinuð við þingfestingu 8. september. Maðurinn mætti fyrir dóm, játaði bæði brotin skýlaust og samþykkti kröfu ákæruvaldsins um upptöku áfengis og búnaðar.
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að maðurinn hefði ítrekað verið sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti frá árinu 2015. Í apríl 2023 hlaut hann átta mánaða fangelsisdóm fyrir ölvunarakstur í fimmta sinn og akstur sviptur ökurétti í sjöunda sinn.
Hann var aftur dæmdur til fangelsis í september 2024 fyrir akstur sviptur ökurétti og hlaut sjö mánaða fangelsisdóm vegna sambærilegs brots í september 2025.
Til refsilækkunar var litið til skýlausrar játningar mannsins og þess sem fram kom fyrir dómi að hann iðraðist og væri að taka á sínum málum. Vegna sakaferils hans og dómvenju um ítrekuð umferðarlagabrot þóttu hins vegar ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð. Áfengið, þrjár fötur, tvö bruggtæki, tvær samfastar fötur, þrír áfengismælar og tveir pokar af kolasíum voru gerð upptæk til ríkissjóðs. Manninum var einnig gert að greiða 249.782 krónur í sakarkostnað.