
Aðalþing Hringborðs Norðurslóða, Arctic Circle, hefst í Hörpu á morgun, fimmtudaginn 8. október, og stendur til laugardagsins 10. október. Rúmlega 2.000 þátttakendur frá um 70 löndum sækja þingið, þar sem um 200 málstofur fara fram með þátttöku um 700 ræðumanna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.
Norðurslóðir í breyttri heimsmynd verða í brennidepli þingsins, þar sem meðal annars verður fjallað um alþjóðastjórnmál, varnarmál, vísindi, loftslagsmál, viðskipti og fjárfestingar. Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands, Kanada, Evrópusambandsins og Kína verða áberandi í dagskránni.
Meðal þeirra sem ávarpa þingið á morgun eru Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, og Jozef Síkela, framkvæmdastjóri ESB á sviði alþjóðlegs samstarfs.
Þá verður fjallað um stefnu og aðgerðir Bandaríkjanna á Norðurslóðum og Mike Dunleavy, ríkisstjóri Alaska, situr fyrir svörum. Á föstudag mun Fu Ying, sem hefur gegnt áhrifamiklum störfum í utanríkismálum Kína, ræða við þátttakendur um þróun og áform Kína á alþjóðavettvangi.
Ráðherrar og stjórnarerindrekar frá meðal annars Tyrklandi, Noregi, Bretlandi, Færeyjum, Eistlandi, Indlandi og Singapúr taka einnig þátt í dagskránni.
Loftslagsbreytingar og gervigreind
Vísindi og loftslagsmál skipa jafnframt stóran sess á þinginu. Fjöldi þekktra vísindamanna og stjórnenda rannsóknastofnana mun fjalla um breytingar á hafstraumum, jöklum og loftslagi.
Johan Rockström, forstjóri Potsdam-rannsóknarstofnunarinnar í Þýskalandi, mun á föstudag ræða mögulegar afleiðingar þess að AMOC-hafstraumakerfið veikist eða hrynji. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfisráðherra, tekur þátt í umræðunum.
Áður en að þeirri umræðu kemur mun Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ræða við bandaríska sérfræðinginn Tristan Harris um þróun gervigreindar og mögulegar hættur sem henni fylgja.
Viðskipti og fjárfestingar á Norðurslóðum
Samhliða aðalþinginu fer fram sérstakt viðskiptaþing þar sem forstjórar fyrirtækja, banka og fjárfestingasjóða ræða viðskiptatækifæri og fjárfestingar á Norðurslóðum.
Á tólf hringborðum verður meðal annars fjallað um orkumál, innviði, siglingar, námuvinnslu, ferðaþjónustu og sjálfbæra nýtingu sjávarauðlinda, með sérstakri áherslu á Grænland, Ísland, Kanada og Færeyjar.
Öryggis- og varnarmál verða einnig til umfjöllunar, auk vísindasamstarfs á tímum vaxandi togstreitu milli stórvelda. Þær umræður fara fram samkvæmt umræðureglum Chatham House.
Að öðru leyti eru málstofur og umræður á aðalsviði Arctic Circle opnar öllum þátttakendum samkvæmt lýðræðisreglum samtakanna.
Hátíð í lok þingsins
Aðalþinginu lýkur með viðburði á vegum Alaska-ríkis þar sem hljómsveitin Pamyua kemur fram og gestum verður boðið upp á rétti frá Alaska.
Að sögn Arctic Circle hefur hlutverk Hringborðs Norðurslóða í alþjóðlegri samvinnu, vísindum, viðskiptum og mótun framtíðar Norðurslóða orðið sífellt mikilvægara í ljósi breyttra samskipta stórvelda og aukinna rannsókna á bráðnun íss og jökla og áhrifum loftslagsbreytinga.
Dagskrá þingsins er að finna á vefsíðu Arctic Circle.
