
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar óvenjulegt atvik sem átti sér stað um borð í flugvél American Airlines á leið frá Baltimore til Miami þann 11. september.
Samkvæmt lögregluskýrslu varð farþegi og eiginkona hans vör við hávær og óvenjuleg hljóð frá sætaröðinni fyrir aftan þau. Þegar maðurinn sneri sér við kvaðst hann hafa séð konu, Inzer, hálfnakta og við kynferðislega iðju í sæti sínu við glugga vélarinnar.
Maðurinn lét áhöfn flugvélarinnar vita af atvikinu. Starfsfólk vélarinnar greip þá inn í og skipaði konunni að hætta athæfinu og klæða sig. Samkvæmt framburði vitnisins varð hún við þeim fyrirmælum.
Eftir að flugvélin lenti í Miami ræddu lögreglumenn við Inzer. Í lögregluskýrslu kemur fram að sterk áfengislykt hafi fundist af henni.
Konan sagði lögreglu að fluginu frá Baltimore hefði seinkað um tvær klukkustundir og að hún hefði fengið sér nokkra áfenga drykki áður en hún fór um borð. Hún sagðist hins vegar ekki muna eftir atvikinu í fluginu og taldi sig hafa verið sofandi.
FBI hefur málið nú til rannsóknar. Inzer hefur ekki verið handtekin eða ákærð vegna málsins.
